Bandaríkjamenn vilja kaupa Glitni í Noregi 7. október 2008 00:01 Lárus Welding viðtakandi og Bjarni Ármannsson, fráfarandi forstjóri Glitnis, í kveðjuhófi sem haldið var fyrir Bjarna í bankanum í júlí í fyrra. Fréttablaðið/Daníel
Glitnir gæti selt starfsemi sína í Noregi á 40 til 50 milljarða króna. Bandaríski fjárfestingarsjóðurinn Paine & Partners hefur sýnt áhuga á kaupunum. Kaupverð hlutar ríkisins í Glitni nam um 84 milljörðum króna. Samkvæmt heimildum Markaðarins hefur Bjarni Ármannsson haft milligöngu í þreifingum um kaupin. Til athugunar hafa verið möguleg kaup bandaríska fjárfestingarsjóðsins Paine & Partners á starfsemi Glitnis í Noregi. Samkvæmt heimildum Markaðarins gæti mögulegt söluvirði starfseminnar verið á bilinu 40 til 50 milljarðar króna. Í apríl síðastliðnum gengu til liðs við Paine & Partners Bjarni Ármannsson og Frank Ove Reite, sem báðir voru áður á mála hjá Glitni sem forstjóri og framkvæmdastjóri. Hjá Paine & Partners kjósa menn að tjá sig ekki um viðræðurnar. Samkvæmt heimildum Markaðarins standa viðræður enn en verði af sölunni til Paine & Partners er þó frekar búist við að salan gangi hratt fyrir sig. Viðræðurnar hófust núna um helgina þegar ljóst var orðið að af hálfu stjórnvalda væri lögð mikil áhersla á að íslensku bankarnir léttu á erlendum eignum sínum. Með sölu á Noregshluta starfsemi Glitnis myndi íslenska ríkið létta verulega á skuldbindingum sínum gagnvart bankanum, en á mánudaginn fyrir viku var tilkynnt um kaup ríkisins á 75 prósenta hlut í bankanum fyrir sem nemur 84 milljörðum króna. Samkvæmt heimildum blaðsins hefur Bjarni Ármannsson haft milligöngu um viðræðurnar, en óvíst er um frekari aðkomu hans að kaupnum. Þó mun ekki útlokað að Paine & Partners geri kröfu um að hann taki einhvern þátt í þeim. Bjarni og Frank O. Reite stýra fjárfestingum sjóðsins í Norður-Evrópu. Þegar þeir gengu til liðs við sjóðinn í apríl upplýsti Bjarni að Paine & Partners væri bakland og farvegur fyrir stærri fjárfestingar en fjárfest væri úr sjóði sem næmi tæpum 90 milljörðum króna.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira