Straumur telur ekki ástæðu til afskipta ríkisins af bankanum 7. október 2008 08:11 „
Straumur hefur látið yfirvöldum í té ítarlegar upplýsingar um fjárhagslega stöðu bankans. Bankanum er ekki kunnugt um að staða hans þyki gefa tilefni til afskipta af því tagi sem heimiluð eru í ofangreindum lögum. Straumur mun hér eftir sem hingað til veita eftirlitsaðilum allar þær upplýsingar sem óskað er eftir." Þetta kemur fram í tilkynningu frá Straumi vegna lagafrumvarps þess sem lagt var fram og samþykkt á Alþingi í gær, þar sem eftirlitsaðilum eru veittar víðtækar heimildir til að grípa inn í rekstur fjármálafyrirtækja. "Fjárhagsleg staða Straums er sterk, eiginfjárhlutfallið hátt og umtalsvert lausafé fyrir hendi. Við höldum því áfram að vinna að þeim markmiðum sem við höfum sett okkur, þrátt fyrir það mikla umrót sem orðið hefur að undanförnu," segir William Fall, forstjóri Straums. Á þessu stigi er ekki unnt að áætla hvaða áhrif hugsanlegt inngrip yfirvalda í starfsemi annarra fjármálafyrirtækja kynni að hafa á Straum. Straumur ætlar sér að standa við kaupin á Landsbanki Securities (UK) Limited, Landsbanki Kepler og Merrion Landsbanki og gerir ráð fyrir að þau gangi eftir samkvæmt áætlun. Öll innlán hjá Straumi á Íslandi eru að fullu tryggð af hálfu íslenskra stjórnvalda. Innlán hjá útibúum og dótturfélögum Straums í Danmörku, Tékklandi og Finnlandi njóta sömu trygginga og gilda almennt í þeim löndum.
Mest lesið Verðbólga hjaðnar Viðskipti innlent Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Viðskipti erlent Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Viðskipti innlent Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Viðskipti innlent Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Viðskipti innlent Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Viðskipti innlent Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Viðskipti erlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Viðskipti innlent Fullt af fólki að vinna við eitthvað sem skiptir ekki máli Atvinnulíf Fleiri fréttir Fjárfestahagsmunir fremur en gervigreind skýri fækkun hjá Íslandsbanka Edda Rut tekur við af Ragnari Þór eftir tuttugu ár í brúnni Ráða þrjá í tengslum við stofnun nýs sjóðs Verðbólga hjaðnar Afkoma í samræmi við áætlanir hjá Símanum Horfa á eftir Steingrími og spara 180 milljónir á ári Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna Íslandsbanki fækkar starfsmönnum um fimmtíu Hagnaður jókst um 21 prósent á fyrsta ársfjórðungi Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða í fyrra Sektað vegna auglýsinga fyrir „nikótínpúðajóladagatal“ Lýsa magnesíumverksmiðju sem „andstæðu loftslagsverkfræði“ Innkalla nautahakk vegna gruns um salmonellu Færðu Finnum Jónsbók Eiginkona stofnandans tekur við stjórnartaumunum Indó tekur upp gjaldeyrisálag: „Erfitt en nauðsynlegt skref“ Dótturfélagið úrskurðað gjaldþrota Vara við svikaherferð í nafni bankans Auglýsa eftir sérfræðingum í Litáen og endurskipuleggja deild Endurræsing hafin hjá Norðuráli B12 Space gjaldþrota Hafa lokið ellefu milljarða króna fjármögnun Yngsti bílasali landsins á lánsbíl frá mömmu Birta Karen ráðin til Viðskiptaráðs Algengast að færri en fjórir skoði eign í fyrstu viku á sölu Ríkið fær tuttugu milljarða frá Landsvirkjun Prentsmiðjan Ísafold gjaldþrota: „Þetta er bara vonlaus business" Samningur um World Class í Eyjum ekki stöðvaður en enn til skoðunar Ráðin forstöðumaður laganáms við lagadeild HR Dagar hf. ráða nýjan fjármálastjóra Sjá meira