Fréttaskýring: Fjögur gengi í gangi og svikamyllur mögulegar Friðrik Indriðason skrifar skrifar 7. október 2008 15:27
Eftir að Seðlabankinn ákvað í morgun að fastsetja gengi krónunnar á millibankamarkaði tímabundið í morgun eru í raun fjögur gengi í gangi á markaðinum. Fyrir utan gengi Seðlabankans eru svo bankarnir með annað gengi til viðskiptavina, greiðslukortafyrirtæki hafa þriðja gengið til viðskipta sinna og erlendir bankar eru svo með fjórða gengið. Í þessari ringulreið sem skapast hefur er evran skráð frá 131 kr. hjá Seðlabankanum og upp í um eða yfir 200 krónur hjá erlendum bönkum og fjármálastofnunum, það er þeim sárafáu sem enn versla með krónuna. Fyrir þá sem hafa góðan aðgang að kaupum og sölu á evru eða öðrum gjaldmiðlum er gósentíð í gangi. Þeir geta keypt evru fyrir krónur þar sem hún er ódýrust og selt hana fyrir krónur þar sem hún er dýrust. Og þessi svikamylla getur gengið endalaust meðan að þetta ástand varir. Það er gríðarleg eftirspurn eftir evrum, eða öðrum gjaldmiðlum, á millibankamarkaðinum hér. Vísir hefur heimildir fyrir því að Seðlabankinn hafi aðeins sett 4 milljónir evra inn á markaðinn eftir tilkynningu sína um fasta gengið, og það í tveimur 2 milljóna evra slumpum. Einn viðmælenda vísir.is segir að þetta sé eins og að henda tveimur hnetum inn á markað þar sem eftirspurn megi líkja við tvo 40 feta gáma af melónum. Bloomberg-fréttaveitan fjallar um fastgengi Seðlabankans í umfjöllun sinni um atburði dagsins á Íslandi. Þar kemur fram að þegar gengið var sett fast í 131 krónur fyrir evru hafi gengið verið 200 krónur hjá Nordea Bank AB. Þarna er um 53% mun að ræða. Lars Christiansen gjaldmiðlasérfræðingur hjá Danske Bank segir í samtali við Bloomberg að ákvörðun Seðlabankans hafi komið sér verulega á óvart. „Þetta fastgengi er engan veginn trúverðugt," segir Christiansen. „Trúverðugt fastgengi þarf trúverðugar ráðstafnir til að koma jafnvægi á efnahagslífið og það höfum við ekki séð ennþá."
Mest lesið Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda Viðskipti innlent Fleiri fréttir Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Sjá meira