Viðskipti innlent

Djúp hugmynd um rekstur kafbáts á Hofsósi

Ein af mörgum djúpum hugmyndum sem rædd var á Hugmyndaþingi Samtaka atvinnulífsins sem fram fór á Hofsósi þann 5. september síðastliðinn var innflutningur á kafbáti fyrir ferðamenn.

Fjallað er um málið í nýjasta fréttabréfi SA. Þar segir að upplýsingafulltrúi Dalvíkurbyggðar, Freyr Antonsson, hafi undanfarið unnið að því að gera innflutninginn að veruleika og leitar nú stuðnings við verkefnið.

Hugmynd hans er að starfrækja kafbát fyrir 36 farþega og sigla um Eyjafjörð á 12 sjómílna hraða ofansjávar og 5 sjómílna hraða neðansjávar, skoða undur hafsins og elta hvali. Kafbáturinn kostar 400 milljónir króna.

 

Sumarið 2009 er ætlunin að leigja tveggja manna kafbát frá US Submarines í Bandaríkjunum. Tveir sérfræðingar koma með kafbátinn og munu þeir meta hvort raunhæft sé að bjóða upp á neðansjávar-skoðunarferðir fyrir ferðamenn í Eyjafirði.

Freyr segir hugmyndina bæði djarfa og mjög áhættusama en hún sé einstök á heimsvísu á tvennan hátt. Í fyrsta lagi er hvergi í heiminum boðið uppá hvalaskoðun neðansjávar. Í öðru lagi er hvergi boðið uppá kafbátaferðir fyrir ferðamenn á kafbát sem gengur hraðar en 3-4 sjómílur ofan- eða neðansjávar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×