Rúmlega 400 gestir skráðir á Haustráðstefnu Skýrr 11. september 2008 15:05
Liðlega 400 ráðstefnugestir hafa nú þegar skráð sig til þátttöku á hina árlegu Haustráðstefnu Skýrr sem haldin verður á föstudag, 12. september. Hefur aðsókn að ráðstefnunni aldrei verið svo mikil. Yfirskrift ráðstefnunnar, sem haldin verður á Hilton Nordica-hótelinu, er fagleg þekkingarmiðlun. Í boði eru fimm mismunandi fyrirlestralínur þar sem verða fluttir tæplega fjörtíu fyrirlestrar af fimmtán erlendum og tuttugu íslenskum sérfræðingum. Fyrirlestralínurnar fimm skiptast í Microsoft-viðskiptalausnir, Oracle-grunntækni, Oracle-viðskiptalausnir, viðskiptagreind og öryggislausnir. Tveir lykilræðumenn setja svip sinn á Haustráðstefnu Skýrr að þessu sinni, þeir Dr. Trausti Kristjánsson hjá Google og Marcus Murray hjá TrueSec. Dr. Trausti flytur fyrirlesturinn Google og Wiki-veröldin. Hann er þróunarstjóri talgreiningar hjá Google og mun í fyrri lykilræðu Haustráðstefnu atvinnulífsins greina frá helstu verkefnum sínum hjá Google, segja frá óvenjulegu vinnuumhverfinu og skyggnast inn í framtíðina. Dr. Trausti starfaði áður hjá IBM og Microsoft. Hann er rafmagnsverkfræðingur frá HÍ og með doktorspróf í tölvunarfræði frá Kanada. Fyrirlestur Marcus Murray ber yfirskriftina Live Hacking. Marcus er eini Svíinn sem ber titilinn Microsoft Security MVP, sem stendur fyrir Microsoft Valued Professional. Hann er vinsæll fyrirlesari á heimsvísu, sem hefur sérhæft sig í öryggislausnum fyrir Microsoft-umhverfið með áherslu á öryggisúttektir og varnir gegn árásum. Marcus mun sýna hvernig tölvuþrjótar ráðast á Microsoft Windows-umhverfi og brjótast inn á staðarnet viðkomandi fyrirtækis. Á ráðstefnunni verður í framhaldinu farið yfir hvað fyrirtæki þurfa að gera til að geta varist tölvuinnbrotum af þessu tagi.
Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent „Það eru engin fórnarlömb hér“ Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Viðskipti innlent Trump frestar boðuðum ofurtollum á Kanada Viðskipti erlent Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Viðskipti innlent Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Sjá meira