Harður viðsnúningur að verða í íslenska efnahagslífinu 11. september 2008 11:58
Greining Glitnis segir að hraður viðsnúningur sé nú að verða í íslensku efnahagslífi eftir þensluskeið sem virðist hafa verið öllu stærra í sniðum undanfarin misseri en áður var talið. Greining fjallar um málið í Morgunkorni sínu. Hagstofan birti í morgun bráðabirgðatölur fyrir landsframleiðslu á 2. fjórðungi þessa árs ásamt endurskoðun fyrir árið 2007 og fyrsta fjórðung ársins. Samkvæmt bráðabirgðatölunum var hagvöxtur á 2. ársfjórðungi 5% miðað við sama fjórðung síðasta árs. Greining segir að vöxturinn sé fyrst og fremst til kominn vegna jákvæðs viðsnúnings í utanríkisviðskiptum, en útflutningur vöru og þjónustu jókst um 25% milli ára á meðan innflutningur minnkaði um 12%. Þjóðarútgjöld minnkuðu hins vegar um 8% á milli ára, sem er mesti samdráttur þjóðarútgjalda síðan Hagstofan hóf að taka saman ársfjórðungslega þjóðhagsreikninga árið 1997. Eftir nær óslitinn myndarlegan vöxt einkaneyslu frá árinu 2003 dróst hún saman um 3,2% á 2. fjórðungi frá sama tíma í fyrra. Var það í samræmi við vísbendingar í hagvísum á borð við þróun greiðslukortaveltu og innflutning einkabifreiða. Þá dróst fjárfesting saman á fjórðungnum um 25,8% miðað við sama ársfjórðung 2007. Ríflega 30% samdráttur í atvinnuvegafjárfestingu var í samræmi við væntingar okkar eftir lok stóriðjuframkvæmda, en nærri 27% samdráttur í fjárfestingu í íbúðarhúsnæði vekur athygli eftir 13,5% samdrátt á 1. ársfjórðungi. Síðan segir í Morgunkorninu: "Ljóst virðist að óhagstæð fjármögnunarskilyrði, snöggkólnun á íbúðamarkaði og mikið framboð á íbúðarhúsnæði hafi haft skjót áhrif á íbúðafjárfestingu og má gera ráð fyrir að þessi þróun haldi áfram. Samneysla eykst hins vegar allmikið líkt og undanfarna fjórðunga, og nam vöxtur hennar á 2. fjórðungi 3,8%."
Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Sjá meira