Bankarnir of stórir fyrir landið Óli Kristján Ármannsson skrifar 29. janúar 2008 01:30 Í hraðbankanum Í nýrri skýrslu Moody's segir að draga myndi úr fjármálalegri áhættu ríkisins ef einhver bankanna drægi úr starfsemi sinni erlendis eða flytti höfðustöðvar sínar úr landi. Fréttablaðið/Stefán
Meðal þess sem lesa má úr nýrri umfjöllun alþjóðlega matsfyrirtækisins Moody‘s er að myntsvæði krónunnar sé orðið of lítið fyrir bankana. Þetta segir Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Kaupþings. Umfjöllun Moody‘s varðar Aaa lánshæfiseinkunn ríkissjóðs, en hana segir fyrirtækið vera á krossgötum. Umfjöllun Moody‘s er þó um margt jákvæð, bæði í garð bankanna og ríkisins. Joan Feldbaum-Vidra, aðalhöfundur skýrslunnar, bendir þó á að hagkerfið hafi ekki farið varhluta af aðstæðum á alþjóðlegum fjármálamörkuðum. Áframhaldandi alþjóðlegur vöxtur bankakerfisins er sagður hafa leitt til þess að ófyrirséðar fjárhagslegar skuldbindingar ríkisins hafi vaxið upp fyrir það sem æskilegt geti talist. Engu að síður segir Moody‘s líklegt að íslensk stjórnvöld geti mætt lausafjárbresti, varið innstæðueigendur og forðast greiðsluþrengingar jafnvel við sérstaklega erfið skilyrði. Vöxtur erlendra skuldbindinga bankakerfisins gæti hins vegar þegar fram í sækir reynt á getu stjórnvalda til að takast á við kreppu. „Að minnsta kosti með hætti sem samræmdist gildandi Aaa-einkunnum,“ segir hún. Þá kemur fram að auka mætti svigrúm stjórnvalda til að glíma við áhrif kreppu í framtíðinni með viðameiri reglusetningu um lausafé banka eða með öðrum kerfisbreytingum sem milduðu hlutverk stjórnvalda sem lánveitanda til þrautavara í erlendri mynt. „Að lokum myndi sérhver þróun í þá átt að drægi úr erlendri starfsemi bankanna eða að þeir flyttu höfuðstöðvar sínar úr landi draga úr fjármálalegri áhættu ríkisins,“ segir í niðurlagi. Ásgeir segir Moody‘s horfa til tvenns konar áhættu í rekstri bankanna, annars lausafjárstöðu á hverjum tíma og hins vegar til kvaða um um eiginfjárstöðu, en yrðu bankarnir fyrir miklum skakkaföllum þyrfti Seðlabankinn að hlaupa undir bagga. „Þeir líta hins vegar ekki til mögulegs uppgjörs fjármálafyrirtækja í evrum sem hefði í sjálfu sér að einhverju marki létt þessum þrýsting af ríkinu. Það er ljóst að þetta myntsvæði er orðið of lítið fyrir bankana.“ Í mati á áhrifum þess að einhver bankanna færi úr landi, segir Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri alþjóða- og markaðssviðs Seðlabankans, Moody‘s einvörðungu líta til áhrifa þess á lánshæfismat ríkisins. „En þeir eru ekkert að velta fyrir sér öðrum afleiðingum á borð við að missa héðan öflug fyrirtæki með fjölda fólks í vinnu. Þeir eru bara að benda á hvað bankarnir eru stórir og hversu mikið af erlendu skuldunum er á þeirra bókum.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Viðskipti innlent Síminn orðinn Ásar hf Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira