Bjóst við árásum í kjölfar samstarfsslita 11. október 2007 20:49 Björn Ingi Hrafnsson. MYND/Vilhelm
Björn Ingi Hrafnsson segist hafa vitað fyrirfram að hann yrði að sitja undir ávirðingum sjálfstæðismanna í kjölfar þess að hann ákvað að sprengja meirihlutann í borgarstjórn í dag. Sigurður Kári Kristjánsson sagði á Vísi að leitun væri að spilltari og siðlausari stjórnmálamanni en Birni Inga og Björn Bjarnason kallar hann „pólitískan loddara" á heimasíðu sinni. „Ég vissi að þannig yrði það," segir Björn Ingi aðspurður út í ummælin sem um hann hafa fallið í dag. „Maður slítur svona samstarfi ekki að gamni sínu og ég vissi vel að áhrifamikil öfl í þjóðfélaginu yrðu afar ósátt við þessa niðurstöðu," segir hann og bætir því við að hann taki svona ummæli nærri sér en að þau dæmi sig sjálf. „Ég held að það sé leitun að jafn ótrúlegum ummælum," segir hann og á við ummæli Sigurðar Kára. Björn segir það rétt að Alfreð Þorsteinsson, fyrrverandi borgarfulltrúi Framsóknarflokksins og stjórnarformaður Orkuveitunnar hafi setið á fundinum þegar ákveðið var að mynda nýjan meirihluta. „Hann kíkti heim til mín í morgun," segir Björn Ingi. Aðspurður hvaða hlutverki Alfreð hefði gegnt í málinu segir Björn: „Hann hafði rætt við þau held ég," segir Björn Ingi og vísar þar til nýrra samstarfsmanna sinna í meirihlutanum. „Hann er gamall vinur sem kann ýmislegt fyrir sér í pólitík en hann gegndi engu sérstöku hlutverki í þessu máli." „Ég er bjartsýnn á að okkur gangi vel að vinna að öllum málum," segir Björn Ingi aðspurður hvort hann sé bjartsýnn á að nýjum meirihluta takist að komast að niðurstöðu í málefnum Orkuveitunnar og REI. „En ég vil ekki ræða einstök mál á þessari stundu. Björn Ingi segir að lokum að deilurnar um REI hafi ekki verið höfuðástæða þess að hann hafi ákveðið að slíta samstarfinu við sjálfstæðismenn heldur hafi hann metið það sem svo að deilurnar innan borgarstjórnarflokks þeirra, sem komu honum mjög á óvart, hafi gert það að verkum að grunndvöllur fyrir samstarfinu við þau hefði verið brostinn.
Mest lesið „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor Innlent Níu nauðgunarákærur bætast við langan lista Erlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Tate-bræður teknir fastir í Miami Erlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Áfram geisar innbrotahrinan Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Veðrið haggist ekki að neinu ráði Fari mjög líklega aftur í „Ég sagði það“-frakkann næsta vor „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Bílvelta í Skötufirði Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Fyrri hluti júlí sá blautasti í sögu Reykjavíkur Lögregla klippti á plöturnar Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar „Þetta er bara toppurinn á ísjakanum“ Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Dagrún ráðin sveitarstjóri Strandabyggðar Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Slasaðist alvarlega við heyskap Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Mótorhjól og bíll skullu saman „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Sjá meira