Straumur fær evruskráningu fyrir áramót 16. október 2007 11:16 "
Þetta er á góðu róli og ég reikna með að evruskráning Straums Burðarás í kauphöllinni verði að veruleika fyrir áramótin," segir Einar Baldvin Stefánsson forstöðumaður lögfræðisviðs Verðbréfaskráningar í samtali við Vísi. "Við og Seðlabankinn höfum verið að kasta á milli okkar pappírum og vinnugögnum og þessi vinna gengur vel." Einar Baldvin segir að hann sjái engin ljón í veginum nú fyrir evruskráningu Straums Burðarás og málið sé á fullu skriði. "Öll mál í kringum þetta hafa verið leyst eða munu verða leyst á næstunni." Sem kunnugt er af fréttum stóð til að evruskráningin yrði að veruleika í síðasta mánuði en þá barst óvænt bréf frá Seðlabankanum þar sem stóð m.a. að þar á bæ kæmu menn af fjöllum um að þetta stæði til. Frestaðist málið af þeim sökum. "Þetta kom okkur verulega á óvart," segir Einar Baldvin. "Í samráðsnefnd Verðbréfaskráningar, Seðlabankans og kauphallarinnar var fundað um málið í maí síðastliðnum. Formaður nefndarinnar kemur frá Seðlabankanum þannig að mönnum þar á bæ átti að vera fullkunnugt um málið." Einar Baldvin segir það vera klárt að einn maður í Seðlabankanum hafi frestað málinu og á hann þar við Davíð Oddsson seðlabankastjóra.
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira