Viðskipti innlent

Hefur mikla trú á undirliggjandi eignum í Commerzbank og AMR

Hannes Smárason, forstjóri FL Group, segir félagið hafa mikla trú á undirliggjandi eignum félagsins í stóru erlendu fyrirtækjunum Commerzbank og AMR.

Hannes var gestur í hádegisviðtalinu á Stöð 2 í dag þar sem hann ræddi meðal annars nýjar afkomutölur FL Group. Samkvæmt þeim tapaði félagið rúmum 27 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi samanborið við 5,3 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Í uppgjörinu segir að miklar sveiflur á alþjóðlegum hlutabréfamörkuðum hafi haft áhrif á afkomuna.

Hannes segir stöðu uppgjörið sína punktstöðuna eins og hún sé í lok þriðja ársfjórðungs en félagið skrái markaðsvirði eigna sinna á þeim tíma ólíkt mörgum öðrum fyrirtækjum.

FL Group á nokkuð stóran hlut bæði í þýska bankanum Commerzbank og bandaríska félaginu AMR, móðurfélagi American Airlines, en bréf beggja félaga hafa fallið nokkuð í óróa á hlutabréfamörkuðum á síðustu mánuðum.

Hefur hljómgrunn hluthafa hjá AMR

Hannes segist sjá tækifæri í AMR, meðal annars með því að brjóta upp starfsemina og selja burt vildarkerfi félagsins. Með því sé hægt að auka verðmæti félagsins töluvert. Hannes hefur sent stjórn AMR bréf þessa efnis og segir að hugmyndir hans hafi fengið mikinn hljómgrunn meðal annarra hluthafa. Aðspurður um gagnrýni hans á stjórnina segir Hannes að hún sé uppbyggileg. Þetta séu ekki fréttir sem stjórnin vilji heyra en þurfi að heyra.

Um Commerzbank segir Hannes að hann sé undirverðlagður og út frá öðrum kennitölum í fjármálageiranum sé um ódýra eign að ræða. Menn bíði spenntir eftir afkomutölum bankans sem birtar verði í næstu viku. Bankinn hafi lækkað í takt við allar fjármálastofnanir á alþjóðavettvangi vegna ótta manna við svokölluð áhættulán á fasteignamarkaði í Bandaríkjunum. FL Group telji sig hins vegar viss um að bankinn sé í góðum rekstri.

Um framtíðaráform félagsins segir Hannes að félagið vinni nú aðallaega á evrópskum markaði en muni horfa í auknum mæli itl Bandaríkjanna. Þá séu enn fremur spennandi markaðir í Indlandi og Kína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×