Samherji kaupir í Rem Offshore í Noregi 2. nóvember 2007 10:26
Dótturfélag Samherja, Kaldbakur hf, hefur keypt tæplega 2,5 milljón hluti í Rem Offshore í Noregi á genginu 53,50 eða fyrir um tæplega 120 milljónir kr. Eftir kaupin á Samherji 6,24% hlut í félaginu. Jafnframt hefur verið gert samkomulag við fimm aðra hluthafa sem eiga 50,51% um að koma fram sameiginlega á aðal- og hluthafafundum Rem. Rem Offshore er útgerðarfyrirtæki sem þjónar olíu-, byggingar- og rannsóknariðnaði á sjó. Félagið gerir út 7 stór skip en 12 skip til viðbótar eru í smíðum, til afhendingar á næstu 3 árum. Floti Rem er sá nýjasti og fullkomnasti á þessu sviði í heiminum. Þjónustusvæði skipanna er aðallega á Norðursjó en einnig undan ströndum Mexíkó, Indlandi og Brasilíu. Rekstri félagsins er stýrt frá höfuðstöðvunum í Fosnavåg í Noregi og eru starfsmenn um 300. Starfsemin hefur vaxið ört á undanförnum misserum og er velta Rem Offshore á árinu 2007 áætluð um 420 milljónir nkr. eða um 4,2 milljarðar kr. í samanburði við 189 milljónir nkr. á árinu 2006. Félagið var skráð á hlutabréfamarkað í Noregi í mars s.l. Með þessum kaupum er Samherji að fara á nýjar slóðir í útgerð. "Rem Offshore er spennandi fyrirtæki, með framsækna og skarpa framtíðarsýn og við álítum möguleikana góða fyrir þennan rekstur. Þekking starfsmanna Samherja mun nýtast en einnig fáum við tækifæri til að öðlast nýja þekkingu í útgerð skipa. Það er mitt mat að þessi fjárfesting styrki Samherja til framtíðar bæði þekkingar- og rekstrarlega", segir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja hf
Mest lesið Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Viðskipti innlent Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum Sjá meira