Fá ekki að vita um fjárfestingu eigin félags Óli Kristján Ármannsson skrifar 1. nóvember 2007 07:00 Stjórn og stjórnendur Existu á ársfundi félagsins fyrr á þessu ári. Greiningardeild Glitnis mælir með kaupum í félaginu enda hafi uppgjör verið yfir væntingum og telur að bréf þess muni hækka um 12 prósent næstu sex mánuði. Markaðurinn/Valli
Hluthafar Existu fá ekki að vita hvað stendur að baki óskráðri eign félagsins í Austur-Evrópu. Meðalspá greiningardeilda gerði ráð fyrir miklu tapi á síðasta ársfjórðungi. Endurmat á eigninni hífir félagið yfir núllið. Hluthafar sem leitað hafa skýringa hjá Exista varðandi uppfærslu á verði óskráðrar fjárfestingar félagsins í Austur-Evrópu hafa fengið þau svör að þær verði ekki gefnar upp. Utanaðkomandi félag er sagt hafa annast verðmatið, en ekki fæst heldur upp gefið hvaða fyrirtæki annaðist það. Exista skilaði um 7,4 milljóna evra hagnaði á þriðja fjórðungi, eða um 644 milljónum króna, en meðalspá greiningardeilda bankanna hljóðaði upp á ríflega 120 milljóna evra tap á fjórðungnum, eða sem svarar tæplega 10,5 milljörðum króna. Á kynningarfundi vegna árshlutauppgjörsins sagði Lýður Guðmundsson stjórnarformaður félagsins að af samkeppnisástæðum væri ekki hægt að gefa frekari upplýsingar um fjárfestinguna sem um ræðir, en ráðist hafi verið í hana með bankanum Lehmann Brothers fyrir einu og hálfu ári síðan. Í umfjöllun greiningardeildar Glitnis um uppgjörið er sagt „athyglisvert" að ekki fáist nánari upplýsingar. „Þessi uppfærsla varð til þess að Exista skilaði hagnaði í fjórðungnum og kom okkur á óvart," segir þar. Hjá Existu fást þær upplýsingar að félagið haldi sig við fyrri ákvarðanir um upplýsingagjöf varðandi þessa fjárfestingu. Vitað sé að félagið sé með í gangi á hverju tíma margvíslegar fjárfestingar án þess að frá þeim sé greint sérstaklega. Að sama skapi er óvíst að upplýst verði frekar um þessa fjárfestingu í næsta ársreikningi félagsins. Þá eru fyrir því fordæmi í rekstri Existu að af samkeppnisástæðum sé ekki greint frá stórum fjárfestingum. Þannig var ekki greint frá kaupum á hlutabréfum í finnska fjármálafyrirtækinu Sampo Group fyrr en þau uppkaup höfðu náð ákveðinni stærð. Þrír lífeyrissjóðir eru meðal 20 stærstu hluthafa Existu. Innan eigastýringadeilda lífeyrissjóða sem blaðið hafði samband við var ekki miklum áhyggjum lýst af skorti á upplýsingum af fjárfestingu félagsins í A-Evrópu. Þó taldi yfirmaður einnar deildar sérstakt að skráð félag skuli ekki upplýsa betur um fjárfestingar sínar. Ekki er vitað til þess að sjóðirnir hafi leitað eftir frekari upplýsingum hjá félaginu en fram komu á kynningarfundi vegna árshlutauppgjörsins.
Mest lesið Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Viðskipti erlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira