Hætta við þráðlaus borgarnet 24. september 2007 14:03 Borgaryfirvöld í St. Louis í Missouri í Bandaríkjunum hafa lent í vandræðum með að tengja þráðlausu sendana, sem setja á upp í borginni, við rafmagn.
Borgaryfirvöld víða um Bandaríkin hafa hætt við áætlanir sínar um að þekja borgir sínar með þráðlausu neti. Í Houston, Chicago, San Francisco og fleiri borgum hafa öll áform um þráðlaust borgarnet verið lögð á hilluna. Samkvæmt fréttavef Reuters hefur verið hætt við flest verkefnin vegna þess hversu dýr og flókin þau voru orðin. Í sumum borgum fannst engin hagkvæm leið til þess að dreifa þráðlausum sendum um borgina og annars staðar gekk ekki að semja við verktaka. Borgaryfirvöld í St. Louis hafa ekki enn komist að því hvernig eigi að rafvæða þráðlausa senda sem festir verða á 1.700 ljósastaura, þegar ljósin eru slökkt. Í flestum borgunum átti að vera ókeypis eða mjög ódýrt að tengjast þráðlausa netinu, og hefur kostnaðurinn sem fylgir því staðið þessum framkvæmdum fyrir þrifum. Tilkoma þriðju kynslóðar farsímanets, sem gerir fólki meðal annars kleift að tengjast internetinu hvar sem er í gegnum GSM-senda, hefur heldur ekki hjálpað. Gísli Marteinn Baldursson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir engin áform uppi hjá Reykjavíkurborg um að koma upp þráðlausu neti um alla borgina. Hugmyndir um slíkt hafi verið uppi hjá Heimdalli, félagi ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, fyrir borgarstjórnarkosningar, en enginn flokkur hafi tekið málið upp á sína arma. „Annars er miðborgin mjög vel tengd hjá okkur, það er hægt að komast í þráðlaust net á nánast hverju einasta kaffihúsi," segir hann.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira