Kalþörungaverksmiðjan komin í 40 tonn á dag 13. nóvember 2007 14:00
Framleiðslan hjá kalkþörungaverksmiðjunni á Bíldudal hefur aldrei verið meiri og í síðustu viku var skipað út 320 tonnum af fullunnum afurðum. Er slíkt met. Vinnslan er komin upp í um 40 tonn en gert er ráð fyrir að um 60 tonn verði unnin á dag. Á bildudalur.is er haft eftir Guðmundi V. Magnússyni að áætlað sé að setja á vaktir við framleiðsluna og við það skapast fleiri störf. "Samhliða útskipun afurðanna var einnig skipað út um 2.300 tonnum af óunnum kalkþörungi en sá útflutningur óunnins hráefnis hefur verið gagnrýndur nokkuð að undanförnu. Að sögn Guðmundar er það gert til að halda markaðshlutdeild á meðan verksmiðjan á Bíldudal er að komast í full afköst og þá verði útflutningi óunnins kalkþörungs að mestu hætt og hráefnið fullunnið á Bíldudal", segir á bildudalur.is. Markaðsstarf kalkþörungaverksmiðjunnar hefur gengið betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. "Er nú þegar til staðar um 18 þúsund tonna markaður en var um 10 þúsund tonn. Til að sinna aukinni eftirspurn hefur þurft að flytja meira magn óunnins kalkþörungs til Írlands í vinnslu þar en ráð var fyrir gert á meðan verksmiðjan á Bíldudal væri að komast í ásættanleg afköst. Það kom einnig fram í máli Guðmundar að dregið verði úr vinnslu kalkþörunga á Írlandi um leið og framleiðslan er kominn í eðlilegt horf á Bíldudal", segir á Bíldudalsvefnum.
Mest lesið Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Munu fljúga til Nashville næsta sumar Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira