VGK-Hönnun styrkir HR 7. nóvember 2007 18:08 Forsvarsmenn VGK-Hönnunar og HR undirrita samninginn.
Verkfræðistofan VGK-Hönnun og Háskólinn í Reykjavík hafa gert með sér samkomulag til þriggja ára sem felur í sér fjárhagslegan stuðning að upphæð 22,5 milljónir króna til tækni- og verkfræðideildar HR. „Fjármununum verður einkum varið til að efla samstarf skólans við MIT, einn helsta vísinda- og tækniháskóla Bandaríkjanna, og aukinna rannsókna og nýsköpunar á sviði orkurannsókna," segir í tilkynningu. „Á móti fær VGK-Hönnun aðgang að fyrirtækjasamstarfi Háskólans í Reykjavík og MIT, sem opnar fyrir möguleika starfsfólks VGK-Hönnunar að sækja sér dýrmæta þekkingu í fræðasamfélag MIT, bæði á sviði verkfræði sem og annarra fræða." „Markmið okkar með þessum fjárstuðningi við Háskólann í Reykjavík er fyrst og fremst að efla starfsemi tækni- og verkfræðideildarinnar enn frekar með það fyrir augum að í framtíðinni skili þessi stuðningur sér í öflugum og vel menntuðum verk- og tæknifræðingum," segir Eyjólfur Árni Rafnsson, framkvæmdastjóri VGK-Hönnunar. „Sérstaklega erum við að horfa til orkumálanna. Eftirspurn eftir sérfræðingum á því sviði fer sífellt vaxandi og því er mikilvægt að hlúa að og styrkja háskólana sem mennta verðandi starfsfólk inn á þetta svið." „Tækni- og verkfræðideild Háskólans í Reykjavík er enn í mikilli uppbyggingu með nám í verkfræði, tæknifræði, iðnfræði og frumgreinum," segir Gunnar Guðni Tómasson deildarforseti hjá HR. „Á næstu misserum er stefnt að stórauknu meistaranámi við deildina auk vaxandi áherslu á rannsóknir. Þessi mikilvægi stuðningur gerir okkur kleift að efla samstarf okkar við MIT og fá aðila þaðan í lið með okkur við frekari mótun og uppbyggingu deildarinnar, auk þess að styðja við almenna starfsemi, jafnt kennslu sem rannsóknir."
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira