Finnur Ingólfsson: Lækkunin ekki í takt við virði Icelandair 7. nóvember 2007 14:27 Finnur Ingólfsson mælir með kaupum í Icelandair.
Athafnamaðurinn Finnur Ingólfsson seldi rúmlega 15% hlut sinn í Icelandair 31. ágúst síðastliðinn. Í dag er gengi bréfa félagsins 30,5% lægra en þegar Finnur seldi og má því leiða líkum að Finnur hafi selt á hárréttum tíma. Í samtali við Vísi þann dag sem hann seldi sagðist Finnur vera svakalega sáttur en þegar Vísir ræddi við hann í dag var hann leiður fyrir hönd hluthafanna sem hafa horft upp á hlut sinn í félaginu rýrna verulega að undanförnu. "Ég sá þetta ekki fyrir þetta hrun þegar ég seldi. Það voru aðrar ástæður sem lágu að baki sölunni á bréfunum mínum," segir Finnur í samtali við Vísi. Hann segist þó sannfærður um að lækkunin sem hafi átt sér stað á bréfum félagsins að undanförnu sé úr takti við raunverulegt virði félagsins. "Ég held að lækkunin sé tilkomin af þremur ástæðum: Í fyrsta lagi vegna lítilla viðskipta með bréf í félaginu, í öðru lagi vegna þess að afkoma á þessu ári ekki samræmi við væntingar þótt hún sé betri en oft áður og í þriðja lagi glímir Icelandair við sama vandamál og önnur félög sem er miklar lækkanir á mörkuðum," segir Finnur um ástæður þessarar hröðu lækkunnar. Aðspurður segist Finnur ekki hafa í hyggju að kaupa bréf í Icelandair nú þótt hann telji gengi bréfanna langt undir markaðsvirði. "Ég er þó viss um sá sem kemur inn núna í félagið á eftir að græða fullt af peningum," segir Finnur.
Mest lesið Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Viðskipti innlent Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Bensínlítrinn kosti 452 krónur fyrir eyðsluminni bíla Neytendur Fengu ekki bætur þrátt fyrir óhreint herbergi Neytendur Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Viðskipti innlent Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Viðskipti erlent Wolt sendlar lögðu niður störf Viðskipti innlent Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Viðskipti innlent Fleiri valkostir í Bónus með Salling Samstarf Ör þróun í iðngreinum heldur fagfólki á tánum Samstarf Fleiri fréttir Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Spurðu hvað fyrirtæki ætluðu að gera og hafa þegar fengið svar Ráðinn fjármálastjóri Háskólans á Bifröst Bein útsending: Hærri skattar, töpuð tækifæri? Atlantic Airways gefur eftir í samkeppni við Icelandair Jón Birgir ráðinn forstjóri Kviku Hætta á að gervigreindin geri fólk að „kjötstykkjum“ Vara við afleiðingunum NTV Promennt kaupir Dale Carnegie Tölurnar að baki vörn stjórnarformanns Rúv Sjá meira