Vaxtahækkun Seðlabankans kom öllum á óvart 1. nóvember 2007 11:16
Óhætt er að segja að hin mikla stýrivaxtahækkun Seðlabankans í morgun hafi komið öllum á óvart. Greiningardeildir bankanna höfðu búist við að vöxtunum yrði haldið óbreyttum. Markaðurinn hefur brugðist við með niðursveiflu í morgun en gengið hefur aftur á móti styrkst um hátt í 2%. „Þetta kemur okkur vissulega í opna skjöldu,“ segir Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis. "Þeir höfðu ekkert gefið í skyn að þessi mikla hækkun stæði til og stangast það á við yfirlýsingar bankans um gildi þess að hafa gagnsæja peningastefnu.“ Ingólfur segir ennfremur að greiningu Glitnis finnist tilefni til að hafa stýrivextina háa. „Verðbólguþróunin reynst neikvæðari en spár gerðu ráð fyrir og enn er mikil þensla í hagkerfinu," segir Ingólfur. „Væntingar neytenda eru miklar og ekki hefur dregið eins mikið úr fjárfestingum eins og reiknað var með.“ Ingólfur segir að þrátt fyrir þetta hafi hækkun upp á 45 punkta komið á óvart endan engar vísbendingar um að slíkt væri í farvatninu. Sjálfir segja forráðamenn Seðlabankans að þurft hefði tvær hækkanir fram að áramótum, eina upp á 25 punkta og eina upp á 20 punkta.
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira