Innlent

Klámkóngar fengu fimm milljónir frá Hótel Sögu

Breki Logason skrifar
Hótel Saga greiddi Snowgathering samtökunum fimm milljónir í skaðabætur í sumar
Hótel Saga greiddi Snowgathering samtökunum fimm milljónir í skaðabætur í sumar

„Þau fengu greiddar skaðabætur í sumar og var samið um upphæðina utan réttar," segir Oddgeir Einarsson fyrrum lögmaður skipuleggjenda Snowgathering klámráðstefnunnar sem átti að fara fram í Reykjavík í mars á þessu ári.

Það fór allt á annan endann í samfélaginu þegar fréttist af komu fólksins sem starfar í klámiðnaðinum en ráðstefnan átti að fara fram á Hótel Sögu. Skipuleggjendur ráðstefnunnar stefndu Hótel Sögu og hljóðaði krafan upp á 10 milljónir króna.

Oddgeir vill ekki staðfesta hve há upphæðin var sem samið var um en samkvæmt heimildum vísis greiddi Hótel Saga helminginn af kröfunni, 5 milljónir króna.

Krafa samtakanna byggðist að mestu leyti á flugförum til landsins sem voru keypt fyrir hátt á fimmta tug manna, launagreiðslum og öðrum útgjöldum í aðdraganda ráðstefnunnar.

Þegar orrahríðin var sem mest í málefni Snowgathering lýstu margir yfir andúð sinni á samtökunum, meðal annars þáverandi borgarstjóri Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson.

Í dag hafa einhverjir borið saman þessa ráðstefnu og hópeflissamkomuna sem fram fer á Nordica Hilton hótelinu í Reykjavík. En þar funda æðstu stjórnendur hergagnaframleiðandans BAE Systems þessa dagana.

„Þetta eru að mínu mati mun hættulegri menn en þeir sem hugðust taka þátt í hinni miklu klámráðstefnu," sagði Stefán Pálsson formaður herstöðvaandstæðinga meðal annars við vísi fyrr í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×