Forstjóraskipti hjá Símanum 26. október 2007 10:44
Sævar Freyr Þráinsson hefur verið ráðinn forstjóri Símans og tekur við starfinu af Brynjólfi Bjarnasyni frá og með næstu mánaðamótum. Brynjólfur færir sig hins vegar til móðurfélags Símans, Skipta, en hann hefur gegnt forstjórastarfi þar samhliða starfi sínu hjá Símanum. Eftir því sem segir í tilkynningu frá Símanum hefur Sævar Freyr starfað hjá Símanum í tólf ár. Hann hefur undanfarin þrjú ár verið í framkvæmdastjórn Símans, fyrst sem framkvæmdastjóri farsímasviðs og nú síðast sem framkvæmdastjóri fyrirtækjasviðs. Sævar Freyr situr í stjórn nokkurra fyrirtækja í eigu Skipta, þ.á.m. Sensa, Aerofone í Bretlandi, BusinessPhone í Danmörku og Nordisk Mobiltelefon sem er með starfsemi í Noregi og Svíþjóð.Haft er eftir Brynjólfi Bjarnasyni að hann fram undan séu fjölmörg spennandi vaxtartækifæri hjá Símanum. „Sævar Freyr er búinn að vera lengi hjá Símanum og gjörþekkir reksturinn og markaðinn. Ég óska honum velfarnaðar í starfi og veit að Síminn mun áfram verða leiðandi félag undir hans stjórn." Brynjólfur segir að nú muni hann beina kröftum sínum að því að efla Skiptasamstæðuna. „Skráning Skipta í OMX-kauphöllina er eitt þeirra verkefna sem unnið er að og hefur í för með sér ýmis tækifæri fyrir félagið," segir Brynjólfur.Sævar Freyr Þráinsson, nýr forstjóri Símans, segir fyrirtækið hafa háleit markmið fyrir utan starfsemi hér á landi. „Síminn hefur jafnframt sett sér það markmið til lengri tíma að verða öflugt félag í fjarskiptum og upplýsingatækni fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á Norðurlöndum og Bretlandi. Mitt verkefni verður að ná fram enn aukinni arðsemi í rekstri Símans og vinna með öflugu samstarfsfólki að því að veita viðskiptavinum okkar framúrskarandi þjónustu og nýta vel þau vaxtartækifæri sem félagið hefur," er haft eftir Sævari Frey.
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira