Skuldir heimila í erlendri mynt nú 14% af heildinni 24. október 2007 12:20
Gengisbundnar skuldir heimilanna halda áfram að vaxa og nema þær nú ríflega 14% af heildarskuldum þeirra við innlánsstofnanir. Heildarútlán innlánsstofnana til heimila námu tæplega 804 milljörðum kr. í septemberlok samkvæmt nýbirtum tölum frá Seðlabankanum. Fjallað er um málið í Morgunkorni Glitnis. Þar kemur m.a. fram að af þessari upphæð voru 579 milljarðar kr. í formi verðtryggðra skuldabréfa, gengisbundin útlán námu 113 milljörðum kr. og 112 milljarðar kr. voru í öðrum útlánaformum á borð við yfirdrátt, óverðtryggð skuldabréf og eignarleigusamninga. Skuldir heimila við innlánsstofnanir hafa aukist um 20% frá sama tíma í fyrra að nafnvirði. Aukningin er þó mun hraðari í gengisbundnum lánum, sem hafa tvöfaldast milli ára. Í síðasta mánuði jukust gengisbundnar skuldir heimilanna t.a.m. um tæpa 5 milljarða kr., en það jafngildir tæplega þriðjungi af heildaraukningu skulda heimila við innlánsstofnanir í síðasta mánuði. Af skuldum innlendra fyrirtækja við innlánsstofnanir eru ríflega 61% í formi gengisbundinna skuldabréfa og yfirdráttarlána í erlendri mynt. Hæst er hlutfallið í útflutningsgreinum og öðrum þeim atvinnugreinum sem hafa verulegan hluta tekjuflæðis í erlendri mynt. Háir vextir í íslenskum krónum, hvort heldur sem eru til skamms eða langs tíma, virðast því hvetja bæði heimili og fyrirtæki til að færa skuldir sínar í auknum mæli yfir í aðra gjaldmiðla
Mest lesið Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira