Formúla 1

Hamilton slapp með skrekkinn

NordicPhotos/GettyImages

Heimsmeistaraefnið Lewis Hamilton hjá McLaren í Formúlu 1 slapp með skrekkinn í kvöld þegar lið hans var sektað fyrir að brjóta reglur um hjólbarðanotkun á æfingum í dag.

Óttast var að Hamilton yrði jafnvel refsað fyrir að nota tvö pör af regndekkjum á æfingunum í dag, en það hefði geta reynst Bretanum unga dýrkeypt ef hann hefði fengið refsingu. McLaren hefur hinsvegar verið gert að greiða 15,000 evru sekt.

Hamilton var reyndar ekki eini ökumaðurinn sem braut dekkjareglurnar og gerðust þeir Jenson Button og Takuma Sato sekir um sama brot.

Hamilton getur sem kunnugt er orðið yngsti heimsmeistari í sögu Formúlu 1 um helgina þegar lokamótið fer fram í Brasilíu. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×