Hagvöxtur útflutnings í stað einkaneyslu 18. október 2007 15:57 Ólafur Darri Andrason og samstarfsfólk hans spá auknu jafnvægi í íslensku efnahagslífi á næstu tveimur árum. MYND/Billi
Hagdeild Alþýðusambands Íslandcs spáir því að það dragi úr ójafnvæginu í hagkerfinu á næstu tveimur árum og að í stað hagvaxtar sem byggist á fjárfestingum og einkaneyslu komi hagvöxtur sem byggist á útflutningi. Þetta kemur fram í haustskýrslu hagdeildarinnar þar sem birt er hagspá fyrir árin 2008 og 2009. Bent er á að hagkerfið sé enn að leita jafnvægis eftir ólgusjó síðustu ára en áfram verði mikið undirliggjandi ójafnvægi. Býst ASÍ við að verðbógla verði áfram mikil út árið og að hún muni aukast á ný á fyrri hluta næsta árs þegar áhrif vegna lækkunar á virðisaukaskatti á matvælum fjara út. Þá má að mati ASÍ einnig búast við verðbólguskoti í kjölfar þess að krónan veikist á seinni hluta ársins 2008. Hún hjaðnar síðan hratt og líkur eru á að verðbólgumarkmiðið náist á miðju ári 2009. ASÍ reiknar enn fremur með að hagvöxtur verði minni en undanfarin ár en samt viðunandi. Fjárfestingar dragast verulega saman í ár og 2008 en aukast á ný árið 2009 samfara uppbyggingu álvers í Helguvík. Þá hægi á vexti einkaneyslunnar og hún dregst lítillega saman árið 2008 en eykst á ný árið 2009. Þá segir hagdeild ASÍ að blikur séu á lofti á vinnumarkaði. Niðurskurður á aflaheimildum, kólnun á byggingarmarkaði og lok stóriðjuframkvæmda á Austurlandi dragi úr spennu í hagkerfinu og við það aukist atvinnuleysi. Haustskýrslu hagdeildarinnar má nálgast hér að neðan í heild sinni.
Mest lesið Ætlar ekki að deyja í smán og gefur frá sér auðæfin Viðskipti erlent Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Atvinnulíf Breytist hratt næstu árin hvaða fyrirtæki teljast stærst og best Atvinnulíf Fluttu mun minna til Bandaríkjanna en meira annað Viðskipti erlent Minnkuðu lúxuspinna en ekki eldflaugina Neytendur Vilja nota geimflaugar til að flytja hergögn hvert sem er Viðskipti erlent Að segja upp án þess að brenna brýr Atvinnulíf „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Viðskipti innlent Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Viðskipti innlent Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hafa þegar skilað nettóbindingu en tafir á stærri föngunarstöð „Umbreyting í átt að velsældarhagkerfi krefst hugrekkis“ Salan á Íslandsbanka: Samið við fjóra erlenda söluaðila Til IDS á Íslandi frá Íslenskri erfðagreiningu Hagnaðist um rúma fimm milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hundrað og fimmtíu manns unnu að opnuninni Samþykktu að bæta við leið fyrir stóra fjárfesta í sölu Íslandsbanka Gríðarlegt áhyggjuefni fyrir Norðurþing Ingunn ráðin framkvæmdastjóri Auðnu Rannsakendur og nemendur við HA fá aðgang að sérhæfðu gervigreindartóli Tæplega átta milljarða króna viðsnúningur milli ára Rekstrarstöðvun sé yfirvofandi á Bakka Til Samtaka atvinnulífsins eftir mánuð á auglýsingastofu Margrét hættir sem forstjóri Nova Sýkna í Samskipamálinu en Eimskip þarf samt að passa sig Ekkert fékkst upp í gjaldþrot upp á tugi milljóna Áhrif tolla Trumps væru innan við eitt prósent Berjaya vill halda áfram að leigja Nordica og Natura Farþegum fjölgaði um 24 prósent í apríl Sólon lokað vegna gjaldþrots Slær bjartari tón þegar kemur að verðbólgunni AGS: Spenna í milliríkjaviðskiptum og bandarískir tollar gætu haft áhrif á Íslandi Sveinn verður viðskiptastjóri hjá Styrkás Ráðin hagfræðingur SVÞ Fríhöfnin fær nýtt nafn og verður lokað um tíma í vikunni Tollar Trump á kvikmyndir „mjög sérstakt útspil“ Ráðinn framkvæmdastjóri mannauðs hjá Benchmark Genetics Þórdís til dómsmálaráðuneytisins „Rán um hábjartan dag“ kom ekki á óvart Hjálmtýr viðskiptastjóri fyrirtækjasviðs ELKO Sjá meira