Talið að Milestone vilji 10% í viðbót af Carnegie-hlutum 17. október 2007 10:42
Verðbréfafyrirtækið Enskilda í Svíþjóð ryksugar nú markaðinn þar af hlutabréfum í Carnegie-bankanum. Ekki er víst hver stendur að baki þessum kaupum en í sænskum fjölmiðlum er leitt getum að því að það sé Invik sem er í eigu Milestone á Íslandi. Eins og áður hefur verið greint frá í Vísi hefur Milestone þegar eignast 9,7% hlut í Carnegie og er talið að félagið vilji auka hlut sinn í 20%. Það er sænka blaðið Affärsvärlden sem fjallar um áhuga Milestone og segir að í gærdag hafi verðbréfamiðlarar Enskilda hringt í eigendur hlutabréfa í Carnegie og reynt að ná kaupum á 10% af hlutafé bankans. Hinsvegar hafi viðbrögð hluthafa verið dræm þótt Enskilda hafi boðist til að kaupa hlutinn á 140 skr. en gengi bréfanna stóð í 135 skr. við lokun markaða í gær. Í dag er gengið aftur á móti komið í 143,75 skr. Í Hálf fimm fréttum greiningar Kaupþings þann 3 október s.l. segir m.a. að með kaupum Milestone á fyrrgreindum 9,7%, í gegnum fjármálafyrirtækið sitt Invik, eru íslenskir fjárfestar orðnir stærstu hluthafarnir í Carnegie á nýjan leik en Landsbankinn átti þar tæpan fimmtungshlut um hríð sem hann seldi með tíu milljarða króna gengishagnaði á vordögum 2006. "Invik er ekki eitt um það að vera áhugasamt um Carnegie því norski fjárfestingarbankinn ABG Sundal Collier tilkynnti í gær að hann hefði eignast um 5,42% hlut í Carnegie. Þá sópaði Glitnir upp 1,8 milljónum hluta í Carnegie fyrir helgi, nærri tveggja prósenta hlut, að sögn Reuters. Óvíst er hvort Glitnir hafi verið að kaupa bréfin fyrir sjálfan sig eða þriðja aðila, til dæmis Invik," segir í Hálf fimm fréttum.
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira