Glitnir í samvinnu við kínverskt orkufyrirtæki 9. október 2007 12:30
Glitnir og kínverska olíu- og orkufyrirtækið Sinopec hafa tilkynnt um aukna samvinnu við jarðhitaverkefni í Kína. Að samstarfinu koma einnig Geysir Green Energy og Reykjavík Energy Invest en markmið samstarfsins er að auka notkun á jarðhita til orkuframleiðslu í Kína. Glitnir og Sinopeg munu stofna sérstakt félag sem mun vinna að því að auka fjárfestingar í jarðhitaverkefnum í Kína. Í tilkynningu um málið kemur fram að Sinopec, sem er skráð á kínverska og alþjóðlega fjármálamarkaði er stærsti framleiðandi og seljandi unninna olíuvara í Kína og annar stærsti hráolíuframleiðandi landsins. Fyrirtækið stundar olíuleit og boranir, rekur olíuhreinsistöðvar og fjölbreytta efnavöruframleiðslu, auk þess að eiga og reka birgðastöðvar og olíuleiðslur sem flytja gas og hráolíu. Samstarfsaðilar hyggjast auka fjárfestingar í jarðhitaverkefnum í Kína með því að þróa áfram tækni í einstökum verkefnum um leið og könnuð verða tækifæri til nýrra hitaveitu- og orkuframleiðsluverkefna. Samningurinn er hrein viðbót við Xianayang jarðhitaverkefnið sem fyrirtækin hafa unnið að með samstarfsaðilum sínum síðan 2006. Nýting jarðhita er umhverfisvænn og hagkvæmur valkostur við hefðbundna orkuframleiðslu í Kína þar sem um 70% orkunnar eru framleidd með kolum.
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Sjá meira