Íslendingar nálægt yfirtökumörkum í JJB Sports og Moss Bros 4. október 2007 16:47
Íslenskir fjárfestar eru nálægt 30% yfirtökumörkum í bresku verslunarkeðjunum JJB Sports og Moss Bros. Þetta kemur fram í umfjöllun Hálf fimm frétta Kaupþingsbanka í dag. Þar er fjallað um markaðsverðmæti hlutabréfa íslenskra fjárfesta í verslanakeðjunum Debenhams, French Connection, JJB Sports, Moss Bros og Woolworths. Fram kemur að markaðsverðmætin í þessum fimm verslanakepjum er nú 37,4 milljarðar kr.. Þegar Unity Investments flaggaði 4,87% í Debenhams þann 11. júní var þáverandi samanlagður eignarhlutur metinn á 44 milljarða króna en eina breytingin sem hefur orðið er sú að hlutur Unity og svo Baugs er nú samanlagt orðinn 13,5%. Það er eignarhlutur upp á 14,2 milljarða króna. "Gengi fyrirtækjanna fimm hefur fallið um 26-48% á þessu ári án þess að tillit sé tekið til arðgreiðslna; Debenhams mest en French Connection minnst. Gengisþróunin hefur verið einkar óhagstæð frá því í sumarbyrjun er slæmt veðurfar tók að setja mark sitt á afkomu félaganna," segir í Hálf fimm fréttum. "Hafa félög á borð við JJB Sports birt neikvæðar afkomuviðvaranir eins og reyndar mörg félög úr geiranum. Exista og forstjórinn Chris Ronnie keyptu um 29% hlut í JJB Sports snemma í júní fyrir 190 milljónir punda, jafnvirði 24 milljarða króna, á genginu 275 pens á hlut. Verðmæti hlutarins hefur fallið um 81 milljón punda eða um tæp fjörutíu prósent. Baugur Group hefur einkum verið duglegur að kaupa bréf þegar þau hafa fallið í verði. Þar sem bréfin hafa haldið áfram að falla í verði má telja auknar líkur á því að einhver þessara félaga verði hreinlega tekin yfir af Íslendingum fyrr eða síðar. Íslensku fjárfestarnir eru til dæmis nálægt 30% yfirtökumörkum í JJB Sports og Moss Bros
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Sjá meira