Glitnir semur í Shanghai 4. október 2007 13:11
Glitnir og kínverska matvælafyrirtækið Fu Ji skrifuðu í dag undir samning sem felur í sér að Glitnir mun verða ráðgjafi Fu Ji, við vöxt fyrirtækisins á kínverska markaðinum. Með samningnum hyggst Fu Ji nýta sér þekkingu Glitnis á alþjóðlegri matvælaframleiðslu. Skrifstofa bankans í Shanghai mun leiða verkefnið fyrir Glitni en þar er að finna mikla þekkingu á kínverskum markaði. Samningurinn við Fu Ji var undirritaður í móttöku í Shanghai, en meðal viðstaddra var forseti Íslands, Hr. Ólafur Ragnar Grímsson sem staddur er í Shanghai vegna "Special Olympic" leikanna. Fu Ji er umsvifamesta fyrirtækið í Shanghai sem sérhæfir sig í alhliða þjónustu með tilbúin hágæða matvæli. Fyrirtækið hefur vaxið hratt á undanförnum árum og samningurinn nú gerir fyrirtækinu kleift að vaxa enn frekar. Fu Ji er skráð í Kauphöllina í Hong Kong og er markaðsvirði félagsins um 150 milljarðar íslenskra króna. Fu Ji afgreiðir yfir eina milljón máltíða á degi hverjum. Auk veisluþjónustu rekur Fu Ji veitingastaði og leggur fyrirtækið áherslu á að nýta sameiginlegan styrk þessara rekstrareininga til að þróa persónulega þjónustu og lausnir fyrir viðskiptavini sína. Wei Dong, stjórnarformaður Fu Ji segir samninginn við Glitni mikilvægt skref fyrir Fu Ji: „Við höfum vaxið hratt á undanförnum árum og viðskipti okkar í Kína ganga mjög vel. Við stefnum að frekari vexti og þar gegnir Glitnir lykilhlutverki. Bankinn hefur framúrskarandi viðskiptanet og sérfræðiþekkingu á sviði matvælaiðnaðar og þá sérfræðiþekkingu viljum við notfæra okkur." Magnús Bjarnason, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs Glitnis segir samkomulagið við Fu Ji vera mjög mikilvægt fyrir bankann. „Fu Ji er vel í stakk búið fyrir áframhaldandi vöxt á þeim sviðum sem fyrirtækið einbeitir sér að og við teljum okkur hafa þekkingu sem muni nýtast þeim til að ná þeim markmiðum sem þeir hafa sett sér á næstu árum."
Mest lesið Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Viðskipti innlent Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Sjá meira