Handbolti

Jafntefli í Digranesi

Elvar Geir Magnússon skrifar
Úr viðureign HK og Vals á síðasta tímabili.
Úr viðureign HK og Vals á síðasta tímabili.

Einn leikur fór fram í N1-deildinni í handbolta í kvöld og endaði hann með jafntefli. HK og Valur mættust í Digranesi og urðu lokatölurnar 24-24 eftir að staðan var 12-12 í hálfleiknum.

Þetta er fyrsta stigið sem Íslandsmeistarar Vals ná sér í á tímabilinu en þeir þurfa enn að bíða eftir sínum fyrsta sigri. Liðið hefur leikið fjóra leiki. Arnór Gunnarsson var markahæstur Vals í kvöld með sjö mörk.

HK er með fimm stig eftir fjóra leiki. Á morgun er einn leikur í deildinni þegar Stjarnan tekur á móti Fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×