Fasteignamarkaðurinn enn á útopnu 1. október 2007 10:49
Fasteignamarkaður hefur verið mjög öflugur á þessu ári og endurspeglað góðar aðstæður í hagkerfinu til húsnæðiskaupa. Gott atvinnuástand og miklar launahækkanir hafa verið helsti drifkraftur markaðarins ásamt allgóðu aðgengi að lánsfjármagni. Allt þetta hefur gert það að verkum að eftirspurn eftir húsnæði hefur verið mikil og fólksfjölgun í landinu hefur einnig aukið eftirspurn. Fjallað er um málið í Morgunkorni Glitnis. Engin merki eru um að farið sé að hægjast um á fasteignamarkaði á höfuðborgarsvæðinu og vikulegar veltutölur sem Fasteignamat ríkisins birtir gefa til kynna að umsvifin séu heldur að aukast en hitt. Undanfarnar tvær vikur hefur um 250 kaupsamningum verið þinglýst í hvorri viku samanborið við um 200 þinglýsta kaupsamninga á viku í ágúst. Þessi aukning á sér stað skömmu eftir að viðskiptabankarnir, Íbúðalánasjóður (ÍLS) og margir lífeyrissjóðir hafa hækkað verðtryggða langtímavexti í 5,1% hjá ÍLS og 5,8%-5,95% hjá viðskiptabönkunum. Vaxtahækkunin virðist því bíta lítið á húsnæðiskaupendum, sem ýmist taka þessi dýru lán til húsnæðisfjármögnunar eða fjármagna húsnæðiskaup sín með öðrum hætti. Töluverð aukning hefur orðið á erlendum lánveitingum til húsnæðiskaupa á árinu og þó tölur um slík lán í september liggi ekki fyrir má leiða að því líkur að slík lántaka fari enn vaxandi.
Mest lesið Ný verslun nærri þúsund fermetrum stærri en sú gamla Neytendur Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Viðskipti innlent Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Viðskipti innlent Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Viðskipti innlent Skattakóngurinn flytur úr landi Viðskipti innlent Verðmunur getur verið allt að 28 prósent Neytendur Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Samstarf Setja tvo milljarða til í fiskeldið sem tapar hundruðum milljóna Viðskipti innlent Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Viðskipti innlent Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Viðskipti innlent Fleiri fréttir Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna: Geti ekki sett fimmtán prósenta toll á allt Melabúðarbræður með hálfan milljarð í fyrra Framkvæmdastjóri Smáríkisins ákærður Pósturinn hættir að senda til Bandaríkjanna á mánudaginn Samherjahjónin fyrrverandi langtekjuhæst Kannast ekki við „lífróður“ Heimildarinnar sem fækkar útgáfudögum Skattakóngurinn flytur úr landi Setja tvo milljarða til í fiskeldið sem tapar hundruðum milljóna „Framboð á markaði er ekki það sem neytendur vilja kaupa“ Móðurfélag útgefanda Moggans tapaði hundruðum milljóna Segir háa stýrivexti bitna á ákveðnum hópi og boðar aðhald í fjárlagafrumvarpi Keyra á orkudrykkjamarkaðinn Kaupa Gompute „Ég bið almenning að hafa þolinmæði með okkur“ Ósáttir með ákvörðun peningastefnunefndar Muni ekki hika við að hækka vexti Sektað fyrir að auglýsa of mikið fyrir Áramótaskaupið Kristján og Leó kaupa fyrrverandi höfuðstöðvar Landsvirkjunar Endurbættur Kaffivagn opnar aftur í dag Gleðiefni að fjármálaráðherri tali um aðhald í ríkisfjármálum Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðunina Seðlabankinn heldur stýrivöxtunum óbreyttum Ráðin til Fossa fjárfestingarbanka Birta nýja ákvörðun um stýrivexti í dag Hvað þurfum við að eiga mikið til að geta hætt að vinna? Herra Hnetusmjör tekjuhæstur í Iceguys Sante fer í hart við Heinemann Davíð trónir enn og aftur á toppnum Runólfur á toppi tekjulistans yfir launahæstu embættismennina og forstjórana Ólafur Ragnar með rúma milljón meira en næsti maður Sjá meira