Björgólfsfeðgar og Þorsteinn með milljón á mánuði 25. september 2007 15:47 Gamli Samson-hópurinn stýrir fjórum stjórnum félaga í Kauphöllinni
Björgólfur Guðmundsson, Björgólfur Thor Björgólfsson og Þorsteinn M. Jónsson eru launahæstu stjórnarformenn félaga í Kauphöllinni. Þeir þiggja allir rúma milljón á mánuði fyrir stjórnarformennsku í félögum sínum. Sá sem þiggur lægst laun er Gunnar Felixson hjá Vinnslustöðinni en hann fær tæpar 100 þúsund krónur fyrir sitt starf. Það er greinilegt á þessu að bankarnir borga stjórnarformönnum sínum best. Björgólfur Guðmundsson er formaður bankaráðs Landbankans, Björgólfur Thor er stjórnarformaður Straums-Burðaráss og Þorsteinn M. Jónsson stýrir stjórn Glitnis. Sigurður Einarsson er stjórnarformaður Kaupþings og fær 800 þúsund krónur á mánuði fyrir það. Hann er hins vegar starfandi stjórnarformaður og eru laun hans örlítið hærri en það þegar allt er tekið saman. Í gær var samþykkt á aðalfundi Alfesca að hækka laun stjórnarmanna félagsins. Sú hækkun þýðir að Ólafur Ólafsson, stærsti hluthafinn og stjórnarformaður, er með 10,5 milljónir í árslaun eða 875 þúsund krónur á mánuði. Þrír einstaklingar, Jón Ásgeir Jóhannesson, Lýður Guðmundsson og Magnús Þorsteinsson, gegna stjórnarformennsku í tveimur félögum. Jón Ásgeir ræður ríkjum hjá 365, sem á meðal annars Vísi, og FL Group. Lýður er stjórnarformaður Bakkavarar Group og Exista og Magnús er stjórnarformaður hjá Icelandic Group og HF Eimskipafélagi Íslands. Björgólfur Thor Björgólfsson þiggur 1,050 milljón á mánuði fyrir stjórnarformennsku í Straumi-Burðarás.Árni Oddur Þórðarson er stjórnarformaður Marel og fær 525 þúsund krónur á mánuði.Benedikt Jóhannesson er stjórnarformaður Nýherja og fær rétt rúmar 200 þúsund krónur á mánuði fyrir vikið.Björgólfur Guðmundsson ber hinn virðulega titil formaður bankaráðs Landsbankans og þiggur 1,050 milljón á mánuði í laun fyrir það.Bogi Pálsson er stjórnarformaður Flögu Group og fær 100 þúsund krónur á manuði fyrir að sinna því starfi.Gunnar Felixson, fyrrverandi forstjóri TM, er stjórnarformaður Vinnslustöðvarinnar og fær 92 þúsund krónur á mánuði.Gunnlaugur Sigmundsson hefur nýtekið við stjórnarformennsku í Icelandair Group og fær 400 þúsund krónur á mánuði.Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson er enn sem komið er stjórnarformaður TM og fær 400 þúsund krónur á mánuði.Jón Ásgeir Jóhannesson gegnir stjórnarformennsku í tveimur félögum. Hann fær 200 þúsund krónur á mánuði hjá 365 og 700 þúsund krónur hjá FL Group.Lýður Guðmundsson er stjórnarformaður Bakkavarar Group og fær 271 þúsund krónur á mánuði fyrir það. Hann er einnig starfandi stjórnarformaður Exista þar sem hann fær 550 þúsund krónur á mánuði.Magnús Þorsteinsson ræður ríkjum á tveimur stöðum. Hann er stjórnarformaður Eimskips þar sem hann fær 650 þúsund krónur á mánuði og hjá Icelandic Group þar sem hann fær 200 þúsund krónur um hver mánaðarmót.Ólafur Ólafsson fær um 10,5 milljónir í laun á ári fyrir að vera stjórnarformaður Alfesca.Sigurður Einarsson er starfandi stjórnarformaður Kaupþings og þiggur 800 þúsund krónur á mánuði fyrir það.Þorsteinn M. Jónsson er launahæsti stjórnarformaðurinn ásamt Björgólfsfeðgum. Hann fær 1,050 milljón á mánuði fyrir að stýra stjórn Glitnis.Þorsteinn Vilhelmsson er stjórnarformaður Atorku Group og fær 500 þúsund krónur á mánuði fyrir það.Þórdís Sigurðardóttir er konan í karlaveldinu. Hún er stjórnarformaður Teymis og þiggur 200 þúsund á krónur á mánuði fyrir það.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Neytendur Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira