Viðskipti innlent

Fær fyrstur norrænna banka starfsleyfi í Dubai

Kaupþing hefur fengið leyfi til að opna útibú í alþjóðlegu fjármálamiðstöðinni Dubai og verður þar með fyrsti norræni bankinn til þess að fá starfsleyfi í þessu umdæmi eins og segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Þar segir enn fremur að bankinn muni í fyrstu einbeita sér að því að sinna fyrirtækjaráðgjöf á svæðinu sem og að útvega þjónustu á sviði einkabankastarfsemi. Umar Ali, framkvæmdastjóri Kaupþings í Miðausturlöndum, mun stýra útibúinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×