FL Group á nú 83,7% í TM 17. september 2007 10:12 Hannes Smárason forstjóri FL Group en fyrirtækið á nú yfir 80% í TM.
FL Group hf. hefur náð samningum við Glitni banka hf., Hnotskurn ehf. og Samherja hf. um kaup á öllum hlutum þeirra í Tryggingamiðstöðinni hf. (TM) en um er að ræða 46,2% eignarhlut. Seljendur fá í sinn hlut 973.673.140 hluti í FL Group á genginu 24,3. FL Group átti fyrir kaupin 37,6% hlutafjár í TM og á því eftir kaupin 83,7%. Kaupverð hlutanna er 47 kr. á hlut og samanlagt kaupverð því tæpir 24 milljarðar króna. Kaupin verða að fullu fjármögnuð með útgáfu nýs hlutafjár í FL Group hf. Guðbjörg M. Matthíasdóttir, sem var stærsti hluthafi TM, og fleiri seldu bréf sín í félaginu til Glitnis fyrir hálfum mánuði á genginu 46,5 krónur á hlut. Glitnir sagði þá að hluturinn yrði ýmist seldur allur eða í hlutum til fjárfesta. Kaupin nú eru háð samþykki hluthafafundar FL Group sem haldinn verður þriðjudaginn 25. september. Þar verður borin fram tillaga um hækkun hlutafjár félagsins vegna kaupanna. Viðskiptin eru ennfremur háð samþykki Fjármálaeftirlitsins. FL Group mun í kjölfarið gera öðrum hluthöfum í TM yfirtökutilboð og er gert ráð fyrir að TM verði afskráð af OMX Reykjavik. Í frétt um málið segir m.a. að í kjölfar viðskiptanna eykst styrkur FL Group verulega og eigið fé fyrirtækisins mun aukast um tæpa 24 milljarða króna. Heildareignir FL Group námu við lok annars ársfjórðungs um 320 milljörðum króna og heildareignir TM á sama tíma voru rétt um 75 milljarðar króna. FL Group hefur því á þessu ári, líkt og undangengin ár, stækkað hratt og umsvif þess aukist að sama skapi. Heildareignir félagsins námu 263 milljörðum króna í upphafi ársins. Stjórnendur FL Group telja að með þessum kaupum opnist tækifæri fyrir félagið á nýju sviði og að möguleikar félagsins til áframhaldandi vaxtar á fjármálamarkaði aukist. Kaup FL Group á TM er fyrsta skref félagsins inn á tryggingamarkaðinn en fyrir hefur það beint sjónum sínum mjög að bankageiranum og er stærsti hluthafinn í Glitni banka ásamt því að eiga umtalsverðan hlut í þýska bankanum Commerzbank.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira