Töluverð lækkun í Kauphöllinni í morgun 10. september 2007 10:20 MYND/Stefán
Töluverð lækkun varð í Kauphöll Íslands þegar markaðir voru opnaðir í morgun klukkan 10 og lækkaði úrvalsvísitalan um 3,35 prósent. Gengi hlutabréfa í fjármálafyrirtækjum lækkaði mest. Þannig lækkaði gengi bréfa í Landsbankanum um 5,28 prósent, hjá Exista um 5,23, Kaupþingi um rúm fjögur prósent og Föroya Bank og Straumi um rúm þrjú prósent. Öll hlutabréf í Kauphöllinni hafa ýmist lækkað eða staðið í stað. Þetta er í takt við lækkanir á mörkuðum í Asíu í morgun en hins vegar varð hækkun á bréfum í kauphöllinni í Lundúnum í morgun þótt hún væri ekki mikil. Greint var frá því í breska blaðinu Sunday Times í gær að bankamenn óttuðust að fjármálakreppa væri í aðsigi vegna mikillar endurfjármögnunar hjá bönkum sem væri í uppsiglingu. Rúmlega sjö þúsund milljarðar króna koma til endurfjármögnunar í næstu viku og hefur upphæðin aldrei verið meiri í sögunni. Fyrirsjáanlegt sé að bankar víðs vegar um heim hafi ekki bolmagn til taka á sig svo miklar skuldbindingar meðal annars vegna skorts á lánsfé. Er því spáð að þeir muni draga verulega úr útlánastarfsemi til fjárfestingafélaga og annarra banka og jafnvel stöðva hana alveg.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Skellir í vél á morgnana og nokkuð ánægð með sjálfa sig í gjafavali Atvinnulíf Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira