Viðskipti innlent

Spá óbreyttum vöxtum hjá Seðlabankanum á fimmtudag

MYND/Heiða

Greiningardeild Glitnis spáir því að stjórn Seðlabanka Íslands breyti ekki stýrivöxtum á fimmtudag en þá verður ákvörðun þar um kynnt. Stýrivextir eru nú 13,3 prósent og hefur Seðlabankinn haldið þeim óbreyttum frá því í desember í fyrra.

Í Morgunkorni Glitnis kemur fram að það sé hin almenna skoðun á markaðnum að vextir verði óbreyttir en meiri óvissa séu um meðfylgjandi stefnuyfirlýsingu bankastjórnarinnar. Þar verði eflaust að finna vísbendingar um næstu skref bankans í peningastjórn.

Greiningardeildin bendir á að Seðlabankinn hafi í júlí síðastliðnum kynnt þriggja ára þjóðhagsspá þar sem fram hefði komið að undirliggjandi verðbólguþrýstingur væri enn mikill og útlit væri fyrir að ekki gæfist svigrúm til stýrivaxtalækkana fyrr en á fyrri helmingi næsta árs. Spáir Greining Glitnis því að bankinn byrji að lækka vexti í lok fyrsta ársfjórðungs 2008.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×