Velta Eimskips ríflega tvöfaldast á mili ára 20. júní 2007 09:13 Hagnaður Eimskips nam 17 milljónum króna.
Hagnaður Eimskips eftir skatta á öðrum ársfjórðungi 2007 nam 0,2 milljónum evra eða 17 milljónum króna samanborið við tap upp á 34,6 milljónir evra eða tæpa þrjá milljarða á sama tímabili árið 2006. Rekstrartekjur félagsins á öðrum ársfjórðungi 2007 námu 397 milljónum evra eða 33 milljörðum króna samanborið við 173 milljónir evra eða 14,4 milljarða á sama tíma árið 2006 og jukust því um 130% milli ára. Rekstrargjöld námu 378 milljónum evra eða 31 milljarði króna samanborið við 170 milljónir evra eða 13 milljarða árið áður. Fjármagnsgjöld voru 14 milljónir evra. Mikill fjármagnskostnaður skýrist af skammtímaláni vegna yfirtöku félagsins á Atlas Cold Storage í upphafi ársins, eða um 50% af heildarfjármagnsgjöldum. Stefnt er að sölu fasteigna Atlas í lok rekstrarársins 2007 og andvirði sölunnar nýtt til að greiða niður skuldir, segir í fréttatilkynningu frá Eimskip. Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips, segir að afkoma félagsins á öðrum ársfjórðungi hafi verið í takt við áætlanir og það sama megi segja um fyrri árshelming í heild sinni. Hann segir jafnframt að Eimskip sé að stækka mikið um þessar mundir og hafi það leitt til aukinnar skuldsetningar félagsins til skemmri tíma. Vegna þessa vegi fjármagnskostnaður þungt.Eimskip sé að stækka mikið um þessar mundir og hafi það leitt til aukinnar skuldsetningar félagsins til skemmri tíma. Vegna þessa vegi fjármagnskostnaður þungt. Árshlutareikning Eimskips má sjá í viðhengi hér að neðan.
Mest lesið Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Viðskipti innlent „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Viðskipti innlent Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn Viðskipti innlent Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Viðskipti innlent Tekjur Nvidia tvöfölduðust milli ára Viðskipti erlent Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Viðskipti innlent Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Gluggi er ekki bara gluggi Samstarf Auknar tekjur og minni kostnaður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Sjá meira