Viðskipti innlent

Sigla kaupir fasteignafélagið Klasa

Tómas Kristjánsson, Þorgils Óttar Mathiesen og Finnur Stefánsson.
Tómas Kristjánsson, Þorgils Óttar Mathiesen og Finnur Stefánsson.

Nýtt fjárfestingarfélag, Sigla ehf. sem er í eigu þriggja fyrrverandi starfsmanna Glitnis, hyggst kaupa allt hlutafé í fasteignafélaginu Klasa.

Þetta eru þeir Finnur Stefánsson, fráfarandi framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Glitnis, Tómas Kristjánsson, fráfarandi framkvæmdastjóri fjármálasviðs Glitnis, og Þorgils Óttar Mathiesen sem á fasteignafélagið Klasa fyrir viðskiptin.

Klasi var stofnaður árið 2004 og leigir út atvinnuhúsnæði ásamt því að vinna að uppbyggingu fasteigna víða, þar á meðal nýs miðbæjar í Garðabæ, þjónustuíbúða fyrir aldraða í Reykjanesbæ og hótels í Örestad í Kaupmannahöfn. Heildareignir Klasa námu tæpum átta milljörðum króna í árslok 2006.

 

Ingvi Jónasson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Klasa. Þorgils Óttar er stjórnarformaður Klasa en auk hans verða í stjórn Klasa þeir Finnur og Tómas auk Ásgeirs Bolla Kristinssonar. Auk þess að eiga Klasa hyggst Sigla jafnframt fjárfesta í skráðum og óskráðum hlutabréfum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×