Alexander og Snorri Steinn með stórleik 19. maí 2007 20:49 Alexander Petersson hefur sannað sig sem einn besti hornarmaður heims í ár.
Alexander Petersson skoraði níu mörk þegar lið hans Grosswallstadt vann stórsigur á Wilhelmshavener í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 31-19. Snorri Steinn Guðjónsson gerði enn betur og skoraði 10 mörk þegar Minden tapaði fyrir TuS N-Lübbecke, 31-30, og þá lagði Íslendingaliðið Gummersbach lið Balingen af velli, 38-28. Gylfi Gylfason skoraði fimm mörk fyrir Wilhelmshavener en liðið er í 11. sæti deildarinnar með 22 stig. Grosswallstad er hins vegar í 9. sæti með 35 stig eftir sigurinn í dag. Sigur Lübbecke á Minden gefur liðinu von um að halda sæti sínu í deildinni en liðið er með 13 stig og þarf þrjú til viðbótar til að komast úr fallsæti. Minden er með 17 stig í 14. sæti. Þess má geta að Alexander skoraði tvö af mörkum sínum úr vítaköstum en fimm mörk Snorra komu af vítalínunni. Íslendingarnir hjá Gummersbach komu mismikið við sögu í kvöld. Róbert Gunnarsson var þeirra markahæstur með sex mörk en Guðjón Valur Sigurðsson hafði óvenju hægt um sig og skoraði aðeins þrjú mörk. Sverre Jakobsson lét finna fyrir sér eins og venjulega í vörninni og fékk að líta rauða spjaldið í síðari hálfleik eftir að hafa hlotið þrjár brottvísanir. Gummersbach er með 48 stig í 4. sæti deildarinnar, stigi á eftir Flensburg. Hamborg tapaði fyrir Kronau-Östringen á útivelli, 30-28, og er þar með ennþá tveimur stigum á eftir Kiel á toppnum. Bæði lið hafa spilað 32 leiki og eiga því eftir að spila fjóra leiki á tímabilinu. Kiel stendur því með pálmann í höndunum, enda með mun betri markatölu.
Mest lesið „Hvernig getur þetta gerst á fótboltaleik?“ Fótbolti Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Handbolti Ægir Þór óttaðist að ferlinum væri lokið Körfubolti Messi keypti spænskt fótboltafélag Fótbolti Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Íslenski boltinn Cristiano Ronaldo ældi inn í klefa Fótbolti Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ Enski boltinn Vignir Vatnar sneri upp á Evrópumeistara Sport Mark Alberts ekki nóg og Crystal Palace upplifði sögulegt kvöld Fótbolti Gervigreindin gaf Alberti engan séns hjá Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Svíar syrgja handboltahetju: „Svo djöfullega ósanngjarnt“ Gróttukonur sóttu dýrmætan sigur í Mýrina Einar Bragi frábær þegar Kristianstad tryggði sig í undanúrslit Guðjón Valur stýrði Gummersbach til sigurs í ellefta leiknum í röð Elín Klara og félagar sópuðu Skuru í sumarfrí Riðill Íslands á EM klár: Mætast aftur eftir frækna sigurinn Þurftu að stöðva leikinn þar til að hann slökkti ljósin Uppgjör: Valur-Fram 26-24 | Ótrúleg endurkoma meistaranna í fyrsta leik Stjarnan heldur sæti sínu í Olísdeild karla Haukakonur með frábæran sigur í Eyjum Viktor Gísli með 54 prósent markvörslu í spænsku deildinni Óðinn og Lena Margrét með sópinn á lofti í úrslitakeppninni Benedikt byrjaði úrslitakeppnina vel Langur samningur og krafan er skýr „Ætla að klára þetta með stæl og vonandi landa þeim stóra“ „Ekkert annað sem freistaði mín meira en þetta“ „Auðvitað bara dugar þetta ekki“ „Undirbúningur, hjartað og baráttan“ „Ekki til betri skemmtun en þetta“ Uppgjörið: FH - Haukar 27-23 | FH-ingar einum sigri frá úrslitum Guðjón Valur missir besta leikmann liðsins í slæm meiðsli „Skemmtilegustu leikirnir að spila“ Fengu tveggja ára bann fyrir að svindla á þolprófi Snorri semur til 2032 Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Díana fer aftur til Fram Sópurinn aftur inn í skáp hjá bæði Birgi Steini og Einari Braga Uppgjörið: Valur - KA 38-34| Valsmenn sópuðu KA í sumarfrí Bjarki klikkaði ekki á skoti í toppslagnum Með gæsahúð um allan líkamann í kveðjuleiknum Sjá meira