Bjóða peningaverðlaun fyrir upplýsingar um innbrot 23. maí 2007 15:35 MYND/Stöð 2
Verktakafyrirtækið Húsbygg hefur heitið þeim sem getur gefið upplýsingar um stórfelld skemmdarverk sem unnin voru í nýbyggingu fyrirtækisins á Akranesi í síðustu viku 100 þúsund krónum í verðlaun. Talið er að tjón af völdum skemmdarvarganna nemi allt að fjórum milljónum króna. „Við viljum upplýsa málið sem fyrst," sagði Einar Árnason, yfirverkstjóri verktakafyrirtækisins Húsbygg, í samtali við Vísi. Á fréttavef Skessuhorns er greint frá því að stórfellt eignatjón hafi verið unnið fyrir rúmri viku í tíu hæða íbúðablokk sem er í byggingu við Stilliholt á Akranesi. Meðal annars var miklu magni af málningu hellt niður í lyftuop og yfir dýr og viðkvæm rafmagnstæki. Húsbygg sér um framkvæmdir á svæðinu og hefur fyrirtækið nú lofað hverjum þeim sem getur gefið upplýsingar um verknaðinn 100 þúsund krónum í verðlaun. Einar sagði í samtali við Vísi ljóst að tjónið nema að minnsta kosti fjórum milljónum króna. Hann segir viðbúið að fyrirtækið muni krefjast skaðabóta af þeim sem ber ábyrgð á skemmdunum. „Við munum væntanlega fara fram á að hinn seki bæti skaðann." Að sögn Einars hafa engar vísbendingar borist enn sem komið er. Þeir sem geta gefið upplýsingar er bent á að hringja í Einar Árnason í síma 897-0770 eða lögregluna í síma 431-1977.
Mest lesið Eldur í bíl í Vesturbænum Innlent „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Innlent Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina Innlent Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Innlent Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Innlent Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Innlent Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Innlent Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Innlent Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Innlent Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Innlent Fleiri fréttir Andri hafi verið yfirvegaður við handtökuna Vara við hættulegum aðstæðum á Fimmvörðuhálsi Þyrlan kölluð út vegna manns sem féll í Stuðlagil Telur raunsætt að Íslandsmið verði „sérstakt stjórnsýslusvæði“ Tímabundin breyting á opnunartíma Sundhallarinnar Malbika við Baulu í kvöld Sitji ekki á Kjarval að drekka þúsund króna kaffi Smá hökt aðeins byrjunin á einhverju stórkostlegu Fullviss um að hann myndi ekki lifa þetta af Hvetur almenning til að vara sig á gerviaðgöngum Bottar hrella í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu Seinka skýrslutöku maltnesku læknanna Eldur í bíl í Vesturbænum Hnífamaður reyndist vera að tína blóm Talsverð úrkoma í vændum í dag Taka á brotakenndri upplýsingagjöf um heilsufar dýra Hjörtur sagður hafa gerst brotlegur við siðareglur með gagnrýni sinni á Klíníkina „Skiljum mjög vel að þetta sé erfitt fyrir íbúana í hverfinu“ Fimm hundruð milljóna króna viðhald á dagskrá Vilja að aldursviðmið um börn í vopnalögum verði uppfærð Malbika Vesturlandsveg og stýra umferð á meðan Tvö útköll á svipuðum slóðum á hálendinu með stuttu millibili Tilkynnt um heimilisofbeldi í Reykjavík og Hafnarfirði Vaxtaákvörðunin hafi ekki verið rædd Gagnrýnir viðbragð lögreglu eftir áhlaup ungmenna Ráðherra byrjar með hlaðvarp Höfðu afskipti af á fjórða tug unglinga vegna drykkju „Ætlar hann að segja já eða nei?“ Hótar að flytja aftur til Færeyja gangi Ísland í ESB Hvað gerist á fasteignamarkaði ef við göngum í ESB? Sjá meira