Tengjast þráðlaust við hljóðgjafa með blátækni 10. september 2007 12:00 Anna heldur hér á Epoq-heyrnartæki sem er svo nett að augað fær það varla greint. MYND/Eyþór Árnason
Epoq-heyrnartækin eru komin til Íslands en þau eru talin vera fullkomnustu heyrnartæki á markaðinum í dag. „Það sem er einstakt við Epoq-heyrnartækin er að þau búa yfir nýrri, þráðlausri tækni, sem gerir það að verkum að tvö tæki geta skipst á upplýsingum og samhæft allar stillingar. Fyrir vikið upplifir notandinn meiri víðóma skynjun fyrir hljóði en áður, í stað þess að tækin vinni sjálfstætt á hvoru eyra." Þetta segir Anna Linda Guðmundsdóttir, hjúkrunarfræðingur og starfsmaður fyrirtækisins Heyrnatækni, um Epoq-heyrnartækin sem eru nýjung á markaðnum og þykja algjör tæknibylting. Anna líkir breytingunni við stökkið sem varð þegar heyrnartæki þróuðust úr því að vera hliðræn yfir í stafræn, sem olli byltingu á sínum tíma. Að sögn Önnu hafa heyrnartæki ekki áður unnið saman og heldur ekki á jafn miklum hraða. Í raun líki nýju tækin eftir hæfileika eyrna til að nema hljóð og vinna úr því. „Í kjölfarið verður allt mun skýrara," útskýrir hún. „Menn átta sig betur á hvaðan hljóð koma. Til dæmis í margmenni. Tali einhver við þá eiga þeir auðveldara með að greina upptök hljóðsins." Eins og áður sagði búa tækin yfir eiginleikanum til að tengjast þráðlaust og þá við öll tæki sem búa yfir blátækni. Það gerist í gegnum tækið Streymir sem lítur út eins og iPod og flytur boðin á milli tækjanna. Þannig má tengja heyrnartækin þráðlaust við farsíma, tölvur eða með snúru við aðra hljóðgjafa. „Ég reyndi þetta sjálf um daginn," segir Anna. „Tengdi heyrnartækin við iPodinn minn og við það breyttust þau í þráðlaus heyrnartól. Það virkaði mjög vel. Það sama gildir um farsíma. Hljóð berast þráðlaust beint í farsímann og talað er í Streymi þegar talað er í gemsann." Að lokum má telja upp útlit tækjanna, sem þykja listilega vel úr garði gerð. Létt og meðfærileg, svo þau sjást varla á bakvið eyra og eru því þægileg í notkun.
Mest lesið Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Sjá meira