Gott mótvægi við fjármálafyrirtækin 20. júní 2007 05:45 Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands. Skráningu Century á First North segir Þórður verða notaða sem fordæmi til að laða önnur félög utan Evrópusambandsins að Kauphöllinni.
Skráning Century Aluminum í Kauphöll Íslands er tímamótaskráning að mati Þórðar Friðjónssonar, forstjóra Kauphallar Íslands. Fordæmi þess að fá bandarískt félag inn á íslenska markaðinn megi nota til að laða önnur félög utan Evrópusambandsins að íslenska markaðnum. Það gildi þó fyrst og fremst ef allt gengur að óskum og viðskipti með félagið verði lífleg. Skráning Century hefur átt sér nokkurra mánaða aðdraganda. Fyrsti fundur Þórðar með Century-mönnum átti sér stað snemma þessa árs. Síðan hefur mikil vinna verið lögð í skráningu félagsins. Hún er einnig brautryðjendaskráning að því leyti að ekkert bandarískt félag hefur áður farið út í tvíhliða skráningu þar vestra og í Evrópu frá því að nýtt regluverk Evrópusambandsins tók gildi. Þetta regluverk er að taka gildi í Evrópu og verður tekið upp hér í haust. Þetta segir Þórður hafa flækt málin. „Á meðan er verið að vinna að nýjum málum liggja hlutirnir ekki eins ljóst fyrir og þeir gera eftir á. Lausnirnar eru ekki eins augljósar. Þess vegna komu tímapunktar í ferlinu þar sem menn fórnuðu höndum og spurðu sjálfa sig hvað í ósköpunum þeir væru komnir út í. En svo einbeittum við okkur að því að leysa málin.“ Þórður á von á að íslenskir fjárfestar taki Century vel á markaði, eins og þeir gerðu í nýafstöðnu hlutafjárútboði. „Century á mikið erindi inn á íslenska markaðinn. Það er gott að fá fyrirtæki inn sem er annars eðlis en fjármálafyrirtækin, sem eru langstærst og orðin dálítið ráðandi á markaðnum núna.“ Hann segir félagið þó eiga möguleika á meiri veltu á aðalamarkaðnum heldur en á First North og góðar líkur séu á að þar verði það skráð innan tíðar. Engu að síður fari First North markaðurinn hratt vaxandi. Heildarmarkaðsvirði skráðra félaga á markaðnum sé um fjórir milljarðar evra. Hann sé nú orðinn stærsti hliðarmarkaður í Evrópu. Hann ætti því að tryggja að Century verði vel sýnilegt, bæði á Íslandi og annars staðar í Evrópu.
Mest lesið Vaka stýrir Collab Viðskipti innlent Hagnaðurinn af Labubu sagður hafa aukist um 350 prósent Viðskipti erlent Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Viðskipti innlent Orkan og Samkaup fá grænt ljós á sameiningu Viðskipti Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Viðskipti innlent Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Viðskipti innlent Slæm vinnustaðamenning: Minni afköst, verri frammistaða, fleiri fjarvistir Atvinnulíf Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vaka stýrir Collab Hagnaður Arion flaug fram úr væntingum Fjárfestar í sjávarútvegi fari að líta annað Hvenær er skynsamlegt að taka út viðbótalífeyrissparnað? Stígur til hliðar vegna „ólíkrar sýnar“ á breytingar Davíð nýr framkvæmdastjóri áfangastaða hjá Arctic Adventures Seldi íbúðina og keypti Bitcoin í staðinn Íbúðum í byggingu fækkar Selja Lagarfoss með tæplega hálfs milljarðs tapi Ójafnrétti að konur þurfi að ganga á veikindarétt vegna barneigna Fyrirtæki í vopnaframleiðslu eru á rauðum lista Völdu Noreg fram yfir Ísland þrátt fyrir að besta lausnin væri hér Eiginkona stjórnarmanns keypti óvart í bankanum Raunverð íbúða hefur þrefaldast frá aldamótum Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Sjá meira