Slökkt á sjónvarpssendum árið 2010 Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 14. nóvember 2007 11:27 Loftnet munu heyra sögunni til eftir að hliðrænum útsendingum verður hætt og stafræna tæknin tekur alfarið við. MYND/Getty Images
Hliðrænni sjónvarpsdreifingu verður hætt hér á landi í lok árs 2010 og stafræn dreifikerfi taka þá alfarið við dreifingu sjónvarpsefnis. Þetta er meðal þess sem kemur fram í fjarskiptaáætlun Póst- og fjarskiptastofnunar 2005-2010. „Þróunin er sú sama alls staðar í Evrópu," segir Hrafnkell Gíslason forstjóri stofnunarinnar. Hann segir tíðnina sem nú fari undir hliðrænar, eða analog, sjónvarpssendingar verðmætasta hluta tíðnisviðsins. Hún muni í framtíðinni verða notuð til að byggja upp farsímakerfi, stafræn sjónvarpskerfi og önnur kerfi til þjónustu við almenning. Í dag var slökkt á sjónvarpssendum fyrir heilt bæjarfélag í Bretlandi. Það var breski bærinn Whitehaven í Cumbria sem er fyrsti staðurinn í Bretlandi sem færir sig alfarið yfir í stafrænt sjónvarp. Íbúar bæjarins þurfa nú breiðband, gervihnött eða myndlykil til að nálgast sjónvarpsefni. Um 25 þúsund heimili eru í bænum sem liggur miðja vegu milli Liverpool og Glasgow. Slökkt verður alfarið fyrir hliðrænar útsendingar sjónvarps í Bretlandi fyrir árið 2012. Eitthvað hefur borið á fyrirspurnum frá fólki til stofnunarinnar um hvort gömlu sjónvarpstækin virki með nýrri tækni. Hrafnkell segir að fólk þurfi ekki að óttast. „Með því að fá sér stafrænan myndlykil geta menn haldið áfram að nota gömlu sjónvörpin." Hrafnkell segir að flestir markaðsaðilar séu komnir vel á veg með að byggja upp kerfi, fyrir utan RUV sem er langstærsta einstaka sjónvarpsrásin sem aðallega er dreift með hliðrænum hætti. Stöð2 og Sýn er dreift áfram með hliðrænum hætti, en eru komin vel á veg með aðra valkosti eins og Digital Island og dreifikerfi Vodafone. Þá dreifir Síminn stafrænu sjónvarpi um ADSL kerfi sitt. Fleiri aðilar dreifa einnig sjónvarpi eins og Gagnaveitan í gegnum ljósleiðarakerfi sitt.
Mest lesið Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent Munu fljúga til Nashville næsta sumar Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira