Íbúðalánasjóður fólksins Birkir Jón Jónsson skrifar 2. september 2007 06:00 Vextir á Íslandi eru háir, allt of háir. Það að eiga þak yfir höfuðið er mannréttindamál, ein af grunnþörfum okkar allra. Stjórnvöldum ber því að stuðla að því að fjármagnskostnaður til þessara grunnþarfa sé sem lægstur. Sú fjármálastofnun sem veitir bestu kjör til húsnæðiskaupa er Íbúðalánasjóður. Allir landsmenn, hvar sem þeir búa, njóta jafnræðis þegar kemur að lánum Íbúðalánasjóðs. Sjóðurinn er rekinn án arðsemissjónarmiða, á einungis að standa undir sínum rekstri og því nýtur almenningur þess sem eigendur fjármálastofnana hefðu annars gert til þeirra viðskipta. Kannanir sýna að yfir 90% landsmanna vilja áfram sjá sterkan Íbúðalánasjóð. Sjóðurinn hefur kappkostað að þjónusta viðskiptavini sína af metnaði og ólíku er saman að jafna þegar horft er til Íbúðalánasjóðs og gömlu Húsnæðismálastofnunarinnar. Íbúðalánasjóður hefur verið þróaður undir forystu Framsóknarflokksins allt frá 1999. Sjóðurinn hefur tekið breytingum á tímabilinu í takt við þróun á húsnæðis- og skuldabréfamarkaði. Váleg tíðindi heyrast nú, eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum, að húsnæðiskerfinu verði gjörbylt. Heyrst hefur að Íbúðalánasjóður eigi einungis að sinna þeim hópum sem eiga undir högg að sækja, lágtekjufólki og kaupendum á óvirkum markaðssvæðum á landsbyggðinni. Bankarnir eiga síðan að fleyta rjómann. Samkeppni á húsnæðislánamarkaði í dag virðist af skornum skammti. Sú einkavæðing sem hefur átt sér stað, og skilað miklum árangri á mörgum sviðum, hefur ekki skilað sér til húsnæðiskaupenda hér á landi. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, virðist hafa látið eftir frjálshyggjudeild íhaldsins um framtíð Íbúðalánasjóðs og breytingar eru í nánd. Ef það verður að veruleika breytist Íbúðalánasjóður í bákn í ríkisrekstrinum. Félagslegt bákn sem mun þurfa milljarða á ári hverju til að standa undir rekstri sínum. Gegn því munum við framsóknarmenn berjast með hetjulegri dáð á næstu misserum, því það eru hagsmunir fólksins að áfram verði rekinn öflugur Íbúðalánasjóður. Öllum almenningi til heilla. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher Skoðun Halldór 08.08.26 Halldór Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Hinir miklu alvitringar Baldur Vignir Karlsson skrifar Skoðun Evrópuherinn og hlutur Íslendinga Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Var þetta kosningaloforðið? Fannar Logi Waldorff Sigurðsson skrifar Skoðun Mín kynslóð brást! Margrét Kristmannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem síar fjármuni út úr ríkissjóði bakdyramegin Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar Sjá meira
Vextir á Íslandi eru háir, allt of háir. Það að eiga þak yfir höfuðið er mannréttindamál, ein af grunnþörfum okkar allra. Stjórnvöldum ber því að stuðla að því að fjármagnskostnaður til þessara grunnþarfa sé sem lægstur. Sú fjármálastofnun sem veitir bestu kjör til húsnæðiskaupa er Íbúðalánasjóður. Allir landsmenn, hvar sem þeir búa, njóta jafnræðis þegar kemur að lánum Íbúðalánasjóðs. Sjóðurinn er rekinn án arðsemissjónarmiða, á einungis að standa undir sínum rekstri og því nýtur almenningur þess sem eigendur fjármálastofnana hefðu annars gert til þeirra viðskipta. Kannanir sýna að yfir 90% landsmanna vilja áfram sjá sterkan Íbúðalánasjóð. Sjóðurinn hefur kappkostað að þjónusta viðskiptavini sína af metnaði og ólíku er saman að jafna þegar horft er til Íbúðalánasjóðs og gömlu Húsnæðismálastofnunarinnar. Íbúðalánasjóður hefur verið þróaður undir forystu Framsóknarflokksins allt frá 1999. Sjóðurinn hefur tekið breytingum á tímabilinu í takt við þróun á húsnæðis- og skuldabréfamarkaði. Váleg tíðindi heyrast nú, eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum, að húsnæðiskerfinu verði gjörbylt. Heyrst hefur að Íbúðalánasjóður eigi einungis að sinna þeim hópum sem eiga undir högg að sækja, lágtekjufólki og kaupendum á óvirkum markaðssvæðum á landsbyggðinni. Bankarnir eiga síðan að fleyta rjómann. Samkeppni á húsnæðislánamarkaði í dag virðist af skornum skammti. Sú einkavæðing sem hefur átt sér stað, og skilað miklum árangri á mörgum sviðum, hefur ekki skilað sér til húsnæðiskaupenda hér á landi. Jóhanna Sigurðardóttir, félagsmálaráðherra, virðist hafa látið eftir frjálshyggjudeild íhaldsins um framtíð Íbúðalánasjóðs og breytingar eru í nánd. Ef það verður að veruleika breytist Íbúðalánasjóður í bákn í ríkisrekstrinum. Félagslegt bákn sem mun þurfa milljarða á ári hverju til að standa undir rekstri sínum. Gegn því munum við framsóknarmenn berjast með hetjulegri dáð á næstu misserum, því það eru hagsmunir fólksins að áfram verði rekinn öflugur Íbúðalánasjóður. Öllum almenningi til heilla. Höfundur er þingmaður Framsóknarflokksins.
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar
Skoðun Hvaða áhrif hefur það á hlaupara að hlaupa fyrir góðan málstað? Þórdís Lilja Gísladóttir skrifar