Vonbrigði með samþættingu Óli Kristján Ármannsson skrifar 9. nóvember 2007 01:00 Hörður Arnarson, forstjóri Marel Food Systems, kynnti uppgjör félagsins fjárfestum og greinendum á fundi í gærmorgun. Fréttablaðið/GVA
Marel Food Systems væntir þess að sjá ábata vegna fyrirtækjakaupa í næsta uppgjöri. Hörður Arnarson, forstjóri félagsins, segir hins vegar ákveðin vonbrigði að ávinningur af samþættingu við AEW Delford og Scanvaegt skuli ekki hafa komið fram á þriðja ársfjórðungi líkt og vænst hafi verið. Hann kynnti árshlutauppgjör félagsins í gærmorgun. Á þriðja ársfjórðungi nemur bókfært tap Marel Food Systems 5,7 milljónum evra eftir skatta, eða tæpum 500 milljónum króna. Í tapi fjórðungsins vegur þungt reiknað tap vegna lækkunar á bréfum í iðnsamstæðunni Stork í Hollandi. Marel á hlut í eignarhaldsfélaginu LME sem á 43 prósent í Stork. Í gangi eru viðræður um sameiningu Marel Food Systems og Stork Food Systems, samhliða viðræðum um kaup breska fjárfestingasjóðsins Candover á því sem eftir stendur í Stork. Hörður segist vonast eftir niðurstöðu í þeim viðræðum innan nokkurra vikna, en bætir við að ekki sé hægt að gefa sér að þær endi með samruna félaganna. „Innri vöxtur er lægri en við stefndum að, en í fullu samræmi við það sem gerist þegar menn eru í stórum yfirtökum," segir Hörður jafnframt, en velta félagsins hefur engu að síður aukist um 54 prósent milli ára. Þá hefur, að sögn Harðar, veik staða Bandaríkjadals áhrif á vaxtatölur í Bandaríkjunum, þar sem félagið gerir upp í evrum. „En í mótteknum pöntunum hefur verkefnastaðan batnað umtalsvert og er í samræmi við okkar áætlanir," segir hann.
Mest lesið Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Viðskipti innlent Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf „Ásta mín, ef þú segir nei við þessu tilboði þá rek ég þig“ Atvinnulíf „Áhyggjuefni ef fyrirtækin mæta þessu með semingi“ Neytendur Virðist ekki vera hægt á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Ísland gerir samkomulag um makrílveiðar í fyrsta skipti Sjá meira