Baugur ætlar að gera 50 milljarða króna yfirtökutilboð í Mosaic 5. maí 2007 06:00 Stofnandi samnefndrar keðju á víðfrægri tískusýningu Mosaic í Laugardalnum fyrir tveimur árum.
Newco, nýstofnað félag í eigu Baugs Group og fleiri fjárfesta, hefur átt í viðræðum við stjórn Mosaic Fashions um að leggja fram formlegt yfirtökutilboð til hluthafa á næstu vikum og taka félagið úr Kauphöll í kjölfarið -tveimur árum eftir að þetta móðurfélag tískuverslanakeðja á borð við Coast, Karen Millen og Oasis var skráð á markað með pomp og pragt. Tilboðsgengið er 17,5 sem þýðir að markaðsvirði Mosaic er um 51 milljarður króna. Baugur, sem er stærsti hluthafinn með 37 prósenta hlut, leiddi hóp fjárfesta sem skráðu félagið í Kauphöllina sumarið 2005 að undangengnu hlutafjárútboði til annarra fjárfesta. Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri hjá Baugi í Bretlandi, er þeirrar skoðunar að þetta sé rétta skrefið fyrir fyrirtækið í ljósi þeirra breytinga sem hafa átt sér stað á rekstri Mosaic og áformin feli ekki í sér uppgjöf. „Við töldum það vera hárréttan tímapunkt í lífi Mosaic Fashions að skrá það á markað fyrir tveimur árum. Mosaic hefur breyst mjög eftir kaupin á Rubicon í fyrra og talsverð samþættingarvinna er fram undan sem felur í sér fjárfestingar og uppbyggingu merkja." Kaupin á Rubicon stækkuðu Mosaic töluvert og gerðu það jafnframt skuldsettara en gengur og gerist með skráð fyrirtæki, sérstaklega þegar horft er til breska markaðarins. „Við teljum í fyrsta lagi að það sé auðveldara fyrir fyrirtæki að vera ekki skráð á þeim tíma sem það fer í gegnum þær breytingar og í öðru lagi höldum við að það tilboð sem við erum að leggja fram sé í rauninni mjög gott fyrir hluthafana," segir Gunnar. Væntanlegt tilboð er tæplega 30 prósentum yfir útboðsgengi félagsins þegar það fór á markað og um tólf prósentum yfir meðalgengi síðustu þriggja mánaða. Margir hafa verið ósáttir með verðþróun á fyrirtækinu, sem rekur 1.853 búðir í 26 löndum, og telja Mosaic vanmetið. Gunnar bendir á að tilboðið miðist við að greiddur sé um það bil nífaldur rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) sem er ekki lágt verð þegar haft er í huga að rekstrarniðurstaða í fyrra var undir væntingum. „Ef við náum að klára þennan feril þá teljum við að þetta sé sanngjarnt verð fyrir hluthafa."
Mest lesið Má gefa börnunum sínum peninga? Viðskipti innlent Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar Viðskipti innlent „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Viðskipti innlent Oraxs komið í sölu og ITHG Dental AI opnar fyrir nýja fjárfesta Samstarf Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Viðskipti innlent Nýr framkvæmdastjóri Kalon Viðskipti innlent Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar Viðskipti innlent „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Tekur því að spara á verðtryggðri bók? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Sjá meira