Markaðurinn: Verðbólgan ekki hærri í nóvember í 17 ár 12. nóvember 2007 17:35 „
Tíðindi dagsins eru þau að verðbólgan hefur ekki verið hærri í nóvember í sautján ár og því skyldi menn ekki undra þessi hækkun Seðlabankans í síðustu viku," sagði Pétur Aðalsteinsson sérfræðingur hjá VBS fjárfestingarbanka í viðtali í Markaðnum nú síðdegis. Pétur spjallaði við Sindra Sindrason umsjónarmann þáttarins rétt fyrir fimm og voru þeir sammála um að það hefðu verið rólegheit á markaðnum í dag. Menn væru varkárir líkt og undanfarna daga og það mætti rekja til þeirrar óvissu sem ríkir á alþjóðlegum mörkuðum. „Þar eru ekki öll kurl komin til grafar og það hafa heyrst raddir um að bönkum á Bandarískum mörkuðum verði skylt að gefa upp hver raunveruleg staða þeirra er í erlendum lánum. Sú óvissa er verðlögð hátt," sagði Pétur í þættinum. Pétur sagði einnig að þessi háa verðbólga nú í nóvember sé sérstök því yfirleitt sé verðbólgan jafnan lág rétt áður en jólaverslunin skellur á. „Þetta er því öðruvísi en áður og vísbending um að það sé spenna. Þetta eykur einnig líkurnar á að það verði önnur vaxtahækkun fyrir áramót eða strax í byrjun næsta árs," sagði Pétur sem vildi rekja þessa óvissu til þess að menn væru að halda að sér höndum. Markaðurinn í umsjón Sindra Sindrasonar er á dagskrá alla virka daga hér á Vísi klukkan 16:45
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira