Óvæntur sigur Lübbecke á Nordhorn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. desember 2007 22:41 Birkir Ívar Guðmundsson átti mjög góðan leik í dag. Nordic Photos / AFP
Birkir Ívar Guðmundsson átti mjög góðan leik þegar að Lübbecke vann afar óvæntan sigur á Nordhorn í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Hann fær mikið lof á heimasíðu félagsins í umfjöllun um leikinn en hann varði 24 skot, þar af tvö vítaköst og stóð í markinu allan leikinn. Þórir Ólafsson lék vitanlega ekki með Lübbecke vegna meiðsla. Lübbecke er engu að síður enn í næstneðsta sæti deildarinnar með níu stig en Nordhorn er í því fjórða með 28 stig. Tapið þýðir að liðið er farið að dragast aðeins frá toppliðunum þremur - Flensburg, Kiel og Hamburg. Toppliðin þrjú unnu öll örugga sigra í dag. Flensburg er því enn á toppnum með 33 stig en Kiel og Hamburg eru í næstu sætum með 32 stig. Flensburg vann þrettán marka sigur á Wilhelmshaven á útivelli, 40-27. Einar Hólmgeirsson og Alexander Petersson skoruðu tvö mörk hver en Gylfi Gylfason var markahæstur leikmanna Wilhelmshaven með átta mörk. Kiel vann Grosswallstadt, 33-21, og Hamburg vann Melsungen, 38-25. Liðið í fimmta sæti, Rhein-Neckar Löwen, tapaði hins vegar einnig afar óvænt fyrir Balingen, 35-33, á útivelli. Balingen er í þrettánda sæti deildarinnar eftir sigurinn. Lemgo er í sjötta sæti og vann í dag sigur á Wetzlar, 27-19. Logi Geirsson var ekki í leikmannahópi Lemgo þó hann sé heill heilsu. Wetzlar er í tólfta sæti deildarinnar. Íslendingaliðið Gummersbach er svo í sjöunda sæti þýsku úrvalsdeildarinnar með 24 stig en liðið mætti öðru Íslendingaliði í dag, Minden. Gummersbach vann leikinn, 32-25. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði sex mörk fyrir Gummersbach, Róbert Gunnarsson þrjú og Sverre Jakobsson lék í vörn liðsins. Einar Örn Jónsson var markahæstur hjá Minden og skoraði sex mörk. Göppingen tapaði fyrir Füchse Berlin á útivelli, 27-23. Jaliesky Garcia skoraði fimm mörk fyrir Göppingen. Að síðustu vann Essen sigur á Magdeburg, 35-30.
Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira