MP Pension opnar í Litháen 22. október 2007 15:52
MP Pension Fund Baltic opnaði við hátíðlega viðhöfn í Vilníus þann 11. október síðastliðinn. Ramūnas Stankevičius, framkvæmdastjóri félagsins, kynnti þar meginmarkmið og verkefni félagsins en markmið þess er að örva frjálsan lífeyrissparnað í Litháen og upplýsa litháískt samfélag um ágæti lífeyrissjóða. Heiðursgestir við opnunina voru Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum utanríkisráðherra Íslands og Jón Sigurðsson, fyrrum bankastjóri Norræna Fjárfestingarbankans og fyrrum iðnaðarráðherra. Í erindum sínum lögðu þeir báðir áherslu á mikilvægi lífeyrissjóða í hagkerfi Íslands og hversu áríðandi væri að huga vel að framtíðaruppbyggingu trausts lífeyrissjóðakerfis í Litháen. Litháíski lífeyrissjóðamarkaðurinn er tiltölulega skammt á veg kominn í þróun lífeyrismála, einkum hvað varðar „þriðju stoðar" lífeyrissjóði. Þriðju stoðar lífeyrissjóðir eru einkareknir lífeyrissjóðir sem gefa launafólki færi á að greiða frjáls viðbótariðgjöld. Í lok júní 2007 voru einungis 6 slíkir lífeyrissjóðir í landinu, með um 20 þúsund meðlimi. Á sama tíma voru þar 21 „annarrar stoðar" lífeyrissjóðir, með yfir 680 þúsund meðlimi. Annarrar stoðar sjóðir einkennast af því að launafólk getur fært í þá ákveðinn hluta af lögbundnum iðgjöldum sínum. Stjórn félagsins er skipuð Íslendingunum Sigurbirni Einarssyni, sem er stjórnarformaður, Ágústi Sindra Karlssyni og Jóni Sigurðssyni.
Mest lesið Mátti rifta kaupum á bíl sem bilaði þremur dögum eftir kaup Neytendur Tollasamkomulag Bandaríkjanna og Kanada út um þúfur Viðskipti erlent Landsbankinn hækkar líka vexti Viðskipti innlent Geti munað allt að tvö þúsund krónum á matarkörfunni eftir verslunum Neytendur Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Viðskipti innlent JYSK opnar nýtt og glæsilegt vöruhús í Mosfellsbæ Samstarf „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Viðskipti innlent „Þegar þú verður betri manneskja nærðu lengra“ Samstarf Jón Þór fer til Samherja Viðskipti innlent Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Hækka stýrivexti Elfa Ýr lætur af störfum hjá Fjölmiðlanefnd Þessir voru tekjuhæstu læknarnir og tannlæknarnir í fyrra Benedikt langlaunahæsti bankastjórinn Fleiri en markaðurinn leggja við hlustir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Sjá meira