Landsvirkjun lýkur fjármögnun ársins 2007 30. nóvember 2007 14:08
Landsvirkjun gaf út í sl. viku skuldabréf að fjárhæð 75 milljónir dollara eða sem svarar til um 4,5 milljarða kr. Lánstíminn er 7 ár og eru kjör skuldabréfsins Libor + 0,07%. Umsjónaraðilar útgáfunnar er belgíski bankinn DEXIA. Með þessari útgáfu er fjármögnun ársins 2007 lokið. Í tilkynningu um málið segir m.a. að frá því í ágúst sl. þegar áhrifa af bandarísku húsnæðislánakrísunni fór að gæta hafa aðstæður á lánamörkuðum verið óhagstæðar. Fjármálafyrirtæki hafa þurft að afskrifa töluverðar fjárhæðir og erfiðleikar í bandaríska hagkerfinu hafa teygt anga sína yfir á aðra markaði. Í kjölfarið hefur mikil áhættufælni ríkt á mörkuðum og margir hafa haldið að sér höndum. Til að gera ástandið enn erfiðara á lánamörkuðum fyrir íslensk fyrirtæki tilkynnti erlenda lánshæfisfyrirtækið Standard & Poor´s í sl. viku að horfur íslenska ríkisins hefðu verið færðar úr stöðugum niður í neikvæðar. Breytingar sem þessar hafa bein áhrif á lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar til hins verra. Þrátt fyrir þessi óhagstæðu ytri skilyrði tókst Landsvirkjun að gefa út skuldabréf á mjög hagstæðum kjörum á sama tíma og tryggingarálag á íslenska ríkið var um Libor + 0,4%. Fyrir utan hefðbundna fjármögnun hefur Landsvirkjun aðgang að veltiláni að upphæð 400 milljón USD sem tekið var í árslok 2005 og er ætlað að styðja enn frekar við lausafjárstöðu fyrirtækisins. Heildarfjárþörf fyrirtækisins fyrir árið 2008 er um 600 milljónir USD og fer því Landsvirkjun inn í næsta ár fjárhagslega sterkt og með töluvert lausafé til ráðstöfunar
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira