Hagnaður SpKef fjórfaldast 7. febrúar 2007 06:00
Metafkoma varð á rekstri Sparisjóðsins í Keflavík (SpKef) á síðasta ári. Hagnaður nam 4.687 milljónum króna og jókst um 308 prósent á milli ára. Arðsemi eigin fjár var 124,5 prósent. Þetta er meiri hagnaður en sem nam eigin fé sparisjóðsins í árslok 2005, sem var 3.765 milljónir króna og hafði byggst upp á tæpri öld. Það er nú komið í 9.272 milljónir en aukning stofnfjár á síðasta ári kemur þar einnig til hækkunar. Hreinar rekstrartekjur námu 7.258 milljónum króna og jukust um 174 prósent frá fyrra ári. Hreinar vaxtatekjur voru 645 milljónir sem var meira en fjórðungssamdráttur. Hins vegar skiluðu aðrar rekstrartekjur 6.613 milljónum króna, þar af var gengishagnaður rúmir fimm milljarðar króna og jókst um 289 prósent. SpKef á bæði beint og óbeint rúmlega þriggja prósenta hlut í fjármálaþjónustufyrirtækinu Existu, sem fór á markað haustið 2006, og myndaðist þá mikill gengishagnaður. Rekstrargjöld voru 1.258 milljónir samanborið við 925 milljónir árið áður sem gefur 36 prósenta aukningu. Kostnaðarhlutfall var ekki nema 17,3 prósent árið 2006 á móti 35 prósentum árið 2005. Heildareignir SpKef voru tæpir 48 milljarðar króna í lok árs og höfðu hækkað um 51 prósent. Eiginfjárhlutfall (CAD) nam 14,17 prósentum á móti 12,42 prósentum í árslok 2005. Sparisjóðurinn boðar nýtt stofnfjárútboð í mars-apríl þar sem stofnfé fyrir 700 milljónir króna að nafnvirði verður selt til stofnfjáreigenda. Stjórnendur sparisjóðsins búast við góðri afkomu á árinu, þó ekki eins góðri og í fyrra. Árið fer þó vel af stað og má þar benda á hækkun á bréfum í Existu frá áramótum.
Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Sjá meira