Virði CCP allt að sexfaldast á einu ári 7. febrúar 2007 06:00
Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Bandarískur fjárfestingasjóður, General Catalyst Partners, vill auka við fimmtán prósenta hlut sinn í netleikjafyrirtækinu CCP og býður nú 1.000 krónur fyrir hlutinn. Sjóðurinn keypti núverandi eignarhlut sinn á genginu 600-800 á síðasta ári. Markaðsvirði CCP, sem gæti legið nálægt tíu milljörðum króna, hefur því nærri sexfaldast á einu ári því samkvæmt heimildum Markaðarins eru aðrir kaupendur jafnvel tilbúnir að greiða meira en þúsund krónur fyrir hlutinn í CCP. Þessi mikla verðmætaaukning er skiljanleg í ljósi þess að CCP braust úr því á síðasta ári að vera sprotafyrirtæki í fullskapað fyrirtæki sem skilar miklum hagnaði. Eins og kom fram á síðum Fréttablaðsins á sínum tíma hagnaðist CCP um 370 milljónir króna á fyrstu níu mánuðum ársins 2006 og velti 1,3 milljörðum króna. Til samanburðar var velta félagsins, sem framleiðir fjölþátttökuleikinn EVE-online, 700 milljónir króna árið 2005 og lítils háttar hagnaður. Fáir hafa hagnast meira á uppgangi CCP en Novator, alþjóðlegt fjárfestingafélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, sem er stærsti hluthafinn með 38 prósenta hlut. Novator fjárfesti í CCP fyrir tæpu ári síðan og greiddi 180 krónur fyrir hlutinn samkvæmt upplýsingum Markaðarins. Miðað við gengið 1.000 krónur á hlut hefur virði eignarhlutar Novators aukist um 455 prósent á tæpu ári. Seljandi bréfanna var Brú Venture Capital, dótturfélag Straums-Burðaráss Fjárfestingabanka, en Björgólfur Thor er stjórnarformaður Straums. Heimildir Markaðarins herma að viðskipti Brúar og Novators hafi farið fram á markaðsgengi þess tíma, en hafa ber í huga að sökum þess að CCP er óskráð fyrirtæki er verðmyndun bréfanna ekki skilvirk. Brú, sem fékk bréfin í arf frá Íslenska hugbúnaðarsjóðnum sem Straumur tók yfir árið 2003, innleysti umtalsverðan hagnað við söluna.
Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fimm frumkvöðlar: Afarnir, pabbarnir og nú 10 ára sonurinn Atvinnulíf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Sjá meira