Ákvörðun um afskráningu Vinnslustöðvarinnar úr kauphöllinni 8. nóvember 2007 11:31
Á hluthafafundi í Vinnslustöðinni hf. verður tekin afstaða til tillögu stjórnar félagsins um að afskrá félagið úr Kauphöllinni. Þessi tillaga stjórnar kemur í kjölfarið á þeim hræringum sem verið hafa í félaginu á árinu. Eyjafrettir.is fjalla um málið og þar segir að eins og kunnugt er, gerðu tveir aðilar tilboð í félagið í sumar. Í vor gerði hópur hluthafa í Vinnslustöðinni (VSV) með sér hluthafasamkomulag um stjórnun og rekstur VSV. Þessi hópur stofnaði hlutafélagið Eyjamenn ehf. sem síðar gerði yfirtökutilboð í VSV. Í byrjun sumars gerðu bræðurnir Guðmundur og Hjálmar Kristjánssynir, oft kenndir við Brim ehf., mun hærra samkeppnistilboð. Ekki reyndist áhugi hjá öðrum hluthöfum að selja sína hluti þannig að ekkert varð af þeirri yfirtöku. Í framhaldi af þessu ákvað meirihluti stjórnar félagsins að óska eftir afskráningu úr Kauphöllinni enda höfðu Eyjamenn ehf. óskað eftir því en þeir réðu yfir liðlega 50% hlutafjár í VSV. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, framkvæmdastjóri Vinnslustöðvarinnar, segir í samtali við Eyjafrettir, að þetta mál þurfi að hafa sinn framgangsmáta. Guðmundur Kristjánsson sagði í sumar, þegar fyrir lá að félagið yrði væntanlega afskráð úr Kauphöllinni, að sú ákvörðun myndi rýra hlut þeirra sem ættu félagið og nefndi t.d. Lífeyrissjóð Vestmannaeyja. Sigurgeir Brynjar var spurður hvort þetta væri þá ekki óráð, ef rétt væri og þetta var svar hans: „Ef það eykur verðgildi fyrirtækja að vera skráð í Kauphöllinni, af hverju skráir Guðmundur Kristjánsson þá ekki sín fyrirtæki þar?"
Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira